Fær íshellaferð ekki endurgreidda Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 25. desember 2025 20:05 Íshellir í Breiðamerkurjökli. Vísir/Vilhelm Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa hefur hafnað kröfu ferðamanns um endurgreiðslu vegna íshellaferðar sem hann mætti ekki í vegna þess að hann taldi að ferðinni hefði verið aflýst.
Málið varðar ferð sem bókuð var í febrúar á þessu ári. Ferðamaðurinn bókaði pláss í Ice Cave and Exploration Tour á vegum ónefnds ferðaþjónustufyrirtækis sem til stóð að hann færi í daginn eftir. Hann greiddi fyrir ferðina 33.500 krónur en mætti ekki í hana eftir að hafa fengið upplýsingar frá öðru ferðaþjónustufyrirtæki um að ferðinni hefði verið aflýst. Aflýsingarboð frá fyrirtæki með líku nafni Samkvæmt því er fram kemur í úrskurði kærunefndarinnar barst ferðamanninum skilaboð frá öðru ferðaþjónustufyrirtæki með líku nafni og fyrirtækið sem hann hafði bókað ferð hjá. Þessi skilaboð hafi borist síðla sama dags og hin umþrætta ferð var bókuð og því kvaðst ferðamaðurinn hafa fyrir mistök talið að ferðinni bókuðu hefði verið aflýst. Hann segist þá hafa reynt að hafa samband við fyrirtækið símleiðis en án árangurs. Hann hafi engu að síður mætt á upphafsstað hinnar umþrættu ferðar tæpum klukkutíma áður en hún átti að hefjast. Þar hafi hann hvergi fundið merkingar sem vísuðu á starfsstöð fyrirtækisins né starfsmann á þess vegum. Hann segist þá hafa leitað til starfsmanns annars ferðaþjónustufyrirtækis á staðnum sem upplýsti hann um að ferðinni hefði verið aflýst. Hann bókaði í kjölfarið aðra sambærilega ferð með því fyrirtæki. Fyrirtækið beri ekki ábyrgð á röngum upplýsingum samkeppnisaðila Ferðaþjónustufyrirtækið hafnaði endurgreiðslukröfunni sem ferðamaðurinn bað þá um og sagði ferðina hafa farið fram samkvæmt áætlun. Allir aðrir bókaðir farþegar hefðu mætt og engin aflýsingarboð verið send út. Fyrirtækið hélt því líka fram að ferðamaðurinn hefði hvorki haft samband við fyrirtækið á ferðadeginum né mætt á starfsstöð þess, sem var opin bróðurpart dagsins. Kærunefndin tekur undir sjónarmið fyrirtækisins og segir ekki hafa verið sýnt fram á að það hefði vannefnt samning sinn við ferðamanninn. Misskilningur hans og rangar upplýsingar frá starfsmanni annars fyrirtækis gefi ekki rétt á endurgreiðslu þegar þjónustan var veitt samkvæmt samningi. Kröfum ferðamannsins var því hafnað.
Ferðaþjónusta Úrskurðar- og kærunefndir Neytendur Mest lesið Þúsundir hringja í Skattinn Viðskipti innlent „Það er bara ólöglegt“ Viðskipti innlent Íris ráðin til SI Viðskipti innlent Besti dagur Wall Street frá því stríðið hófst Viðskipti erlent Eigum við að vera kurteis í samskiptum við gervigreindina? Atvinnulíf Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Viðskipti innlent Fjöldi apóteka sameinast undir vörumerki Apótekarans Viðskipti innlent „Heimsmarkaðsverð eitt og sér stýrir ekki verði úti í búð” Neytendur Sekta Sýn fyrir að sýna efni ekki við hæfi barna fyrir vatnaskil Viðskipti innlent Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Heimsmarkaðsverð eitt og sér stýrir ekki verði úti í búð” Innkalla Íslandsnaut hakk og hamborgara vegna gruns um salmonellu Breytingin auki hvorki traust né öryggi á leigubílamarkaði Android-notendur í hættu að vera ofrukkaðir í Strætó Kalla inn leikföng mögulega menguð af asbesti Sönnuðu ekki fullyrðingar um lækningamátt og fá háa sekt Pepsi víkur fyrir Coca-Cola í vélum Icelandair Boðar ódýrara súkkulaði í sumar vegna hruns á kakóverði Setti Ölgerðina í bann en hefur nú snúist hugur Ein og hálf milljón í sekt vegna villandi auglýsinga Bílstólarnir gagnlausir ef þeir eru vitlaust festir Á að fá endurgreidd gler eftir gallaða sjónmælingu Engin svör að fá sem skýra „rán um hábjartan dag“ Fjölga verslunum í Danaveldinu Innkalla ungbarnakex vegna aðskotahluta Aðskotahlutur í lifrarpylsu: „Mál sem við tökum mjög alvarlega“ Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Sjá meira