Frank Sinatra, Dean Martin og Sammy Davis Jr. lifna við í Hörpu The Definitive Rat Pack 9. janúar 2026 10:03 Stephen Triffitt, George Daniel Long og Mark Adams hafa í meira en tvo áratugi endurskapað The Rat Pack, tríó Frank Sinatra, Sammy Davis Jr og Dean Martin. Þeir koma nú fram í Hörpu. The Definitive Rat Pack metsölusýning frá West End í London kemur til Íslands í fyrsta skipti og verður sýnd í Eldborgarsal Hörpu 27. mars 2026, aðeins þetta eina kvöld.
Gullöld sveiflunnar þar sem Frank Sinatra, Dean Martin og Sammy Davis Jr. – stórstjörnurnar úr hinum svokallaða Rat Pack sem tóku Las Vegas með trompi á sjöunda áratugnum - eru sem ljóslifandi í þessari einstöku og stórskemmtilegu sýningu. George Daniel Long sem Sammy Davis Jr The Definitive Rat Packeru upprunalegu meðlimir úr hinni vinsælu West End sýningu The Rat Pack – Live from Las Vegas sem var sýnd í meira en fimm ár. Stephen Triffitt (Frank), George Daniel Long (Sammy) og Mark Adams (Dean) hafa í meira en tvo áratugi endurskapað skerf af skemmtanasögunni og líkt, af mikilli einlægni og ótrúlegri nákvæmni, eftir röddum og sviðs-persónuleikum þessara þriggja heimsfrægu söngvara. Stephen Triffitt í hlutverki Frank Sinatra Ásamt hinum heillandi Golddiggers bakraddasöngvurum og frábærri níu manna stórsveit (Big Band) skapa þeir töfrandi tónlistarsýningu með þekktum lögum eins og Fly Me to the Moon, Chicago, My Way, That’s Amore, Ain’t That a Kick in the Head, Everybody Loves Somebody, Mr Bojangles, Mack the Knife og að sjálfsögðu New York New York svo nokkur séu nefnd. Hér fyrir neðan má sjá og heyra þá félagana taka lagið: Klippa: The Definitive Rat Pack í Hörpu The Definitive Rat Pack er ein af mörgum, alþjóðlegum sýningum í hæsta gæðaflokki sem breska fyrirtækið Jamboree Entertainment kemur með til landsins. Mark Adams bregður sér í skó Dean Martin Nú á dögunum gátu íslenskir áhorfendur notið kántrítónleikana A Country Night in Nashville og sýningarinnar Mania: The ABBA Tribute. Í september á síðasta ári kom fyrirtækið með Emilio Santoro sem Elvis í fyrsta skipti til Íslands í kjölfarið á sigri hans í The Ultimate Elvis Tribute Contest 2024. Mark Adams sem Dean Martin með The Golddiggers James Cundall eigandi Jamboree Entertainment segir að fyrirtækið vilji setja sér það markmið að koma með alþjóðlega tónlistarviðburði af hæstu gráðu til Íslands og er spenntur að undirbúa fleiri slíka viðburði í Hörpu á næsta ári sem verða kynntir á næstu mánuðum. Miðaverð á The Definitive Rat Packer á bilinu 5.990 kr. til 15.990 kr. og eru miðar nú komnir í sölu á harpa.is og tix.is. Sýningin verður haldin föstudaginn 27. mars 2026 í Eldborgarsal Hörpu kl 20.00.
Tónleikar á Íslandi Tónlist Mest lesið Hvetur karlmenn til að leggja sig meira fram Tíska og hönnun Skíðaferðin til Sviss endaði á spítala á fyrsta degi Lífið Höfundur Fíusólar svarar reiðum mæðrum eftir ákall um bókabrennu Lífið Lýsir yfir stuðningi við Hafdísi Lífið Stikla úr Jóhönnu af Örk Bíó og sjónvarp Hundrað þúsund bóka múrnum rústað á Bókamarkaðnum Menning Djammið lifir á Prikinu Lífið „Enn önnur ömurlega lygasagan um mig“ Lífið Hafdís stígur fram vegna Kleina Lífið Deilur Bríetar og Pálma smitast yfir á síðu Zöru Larsson Lífið Fleiri fréttir Unglingabólur eða úfið hár? Beautyklúbburinn er með lausnina Kerry Ellis og The Barricade Boys saman í Broadway Party í Hörpu Markviss húðumhirða fyrir húð sem fær bólur Unglingar þurfa ekki sýrukrem! Á fermingarkvöldi Hagkaups er farið yfir málin Nærföt og náttföt rjúka út í nýrri vefverslun Lindex Farðinn sem endurvekur þig Spilaðu golf allt árið með Evrópuferðum Stjörnukokkurinn Adam Dahlberg mætir á Lólu Öskursyngja ABBA lögin með áhorfendum Taktu þátt í konudagsleik Vísis Frá kvíða til aukins sjálfstrausts Draumaferð til Kína um páskana Hárlos eftir fæðingu, tímabundið eða varanlegt? Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Sjá meira