Búinn að sturta sig með fötu síðan í nóvember Magnús Jochum Pálsson skrifar 2. janúar 2026 13:14 Gunnar Smári Egilsson fékk það í nýársgjöf að fá sturtuna sína aftur í gang. Vísir/Vilhelm Gunnar Smári Egilsson, ritstjóri Samstöðvarinnar, lenti í því óláni að það bilaði vatnslögn í húsinu hans um miðjan nóvember þannig hann gat ekki sturtað sig í einn og hálfan mánuð. Það kom þó ekki að sök því hann lærði að fara í fötubað í Afríku.
Gunnar Smári greindi frá þessu í Facebook-færslu upp úr hádeginu í dag. „Það bilaði vatnslögn í húsinu um miðjan nóvember og það hefur tekið tímann sinn að finna út úr því og leggja nýjar lagnir. Framkvæmdir eru ekki búnar, en það er aftur komið vatn inn á bað, ég fékk það í nýársgjöf. Ég get sem sé farið í sturtu. Sem er fínt,“ skrifar hann í færslunni. „En það var líka fínt að fara í fötubað, sem ég lærði í Afríku þar sem vatnslagnir eru ekki alltaf svo advanseraðar að þær endi í sturtuhaus, þar sem vatn er ekki óþrjótandi og dýrt að hita það upp,“ skrifar hann. Skúringafata, lítil skál og tveir þvottapokar Telur Gunnar að um tíu lítrar af vatni renni úr sturtu á hverri mínútu svo sjö mínútna sturta kalli á sjötíu lítra af vatni. „Mér dugar hins vegar ein 10 lítra skúringafata í fötubað. Ef einhver vill spara vatn ætti hann að baða sig upp úr fötu. Eina sem þarf er skúringafata, lítil skál til að ausa vatninu yfir sig og tveir þvottapokar. Mér fannst reyndar gott að hafa líka eilítið heitara vatn í minni fötu, bara til að leika mér að því að blanda vatninu og sulla svolítið,“ skrifar hann. „En nú hef ég misst þá gleði, helvítis tæknin hefur aftur lagt undir sig baðherbergið með sínum fábreytileika og niðurdrepandi þægindum,“ skrifar hann að lokum og setur með færslunni mynd af afrísku barni baða sig.
Áramót Mest lesið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Skemmtileg leið til að halda minningunni á lífi Menning Stundum gott að fara öruggu leiðina Tíska og hönnun Patrick Stewart látinn Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Spesíur Elenoru: Jólaklassík sem tekur aðeins 30 mínútur Lífið samstarf Erna Mist og Þorleifur selja Lífið Keppast um að minnast Stewarts Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Fleiri fréttir Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Sjá meira