Óska eftir fundi með Rubio Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 6. janúar 2026 19:59 Rasmussen vill funda með Rubio. Samsett/EPA Utanríkismálanefnd Danmerkur hélt afar leynilegan fund í kvöld um samskipti landsins við Bandaríkin. Lars Lokke Rasmussen, utanríkisráðherra Danmerkur hefur óskað eftir fundi með utanríkisráðherra Bandaríkjanna.
Fundur nefndarinnar kemur í kjölfar orða Donalds Trumps Bandaríkjaforseta og ráðamanna hans um mikilvægi þess að Grænland verði innlimað í Bandaríkin. Eftir innrás Bandaríkjanna í Venesúela, og handtöku forseta landsins, sagði Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, að forsetinn stæði við orð sín. Því er mikil óvissa uppi í Danmörku um hvort forsetinn standi við orð sín sem varða Grænland. „Við höfum komist að samkomulagi um að tíminn sé kominn til að óska eftir fundi með bandaríska utanríkisráðherranum,“ sagði Rasmussen í samtali við TV2. Ekki liggur fyrir hvenær fundurinn mun fara fram en Vivian Motzfeldt, utanríkisráðherra Grænlands, segir að bæði Danmörk og Grænland hafi óskað eftir fundinum með Rubio. „Þegar við óskum eftir fundinum er það vegna þess að við upplifum að hluti þessarar umræðu byggir á misskilningi á því hvað snýr upp og niður,“ segir Rasmussen. Hann segir að Danir verði ekki við ósk Bandaríkjaforsetans um að fá Grænland. Aðspurður hvort hann treysti Trump segist hann treysta aðild Danmerkur að Atlantshafsbandalaginu. „Auðvitað er þetta ekki eitthvað sem við getum orðið við og Grænland hefur enga löngun til að verða við því. Þetta er staðföst afstaða Dana. Við krefjumst þess að hún verði virt.“
Danmörk Bandaríkin NATO Grænland Donald Trump Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Fleiri fréttir Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Sjá meira