Stefán vill verða varaformaður Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 7. janúar 2026 10:18 Stefán Vagn Stefánsson, þingmaður Framsóknarflokksins. Mynd/Steinunn Þorvaldsdóttir Stefán Vagn Stefánsson, þingmaður Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi, gefur kost á sér til að gegna embætti varaformanns flokksins. Kosið verður um forystu flokksins á komandi flokksþingi Framsóknar í næsta mánuði. „
Eftir töluverða yfirlegu og fjölmargar áskoranir hef ég tekið ákvörðun um að bjóða mig fram til varaformanns Framsóknarflokksins á komandi flokksþingi,“ skrifar Stefán Vagn í færslu á Facebook þar sem hann greinir frá framboðinu. Til stendur að flokksþing Framsóknar fari fram í Reykjavík helgina 14.-15. febrúar en Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður flokksins, hyggst ekki halda áfram sem formaður. Meðal annars hefur verið skorað á Willum Þór Þórsson, Lilju Alfreðsdóttur, Ingibjörgu Isaksen og Einar Þorsteinsson til að gefa kost á sér til að leiða flokkinn, en enn á eftir að skýrast betur hverjir muni gefa kost á sér. Sjá einnig: Býður sig ekki fram til áframhaldandi formennsku „Ég vil leggja mitt að mörkum til að svo geti orðið. Ég tel að reynsla mín, bæði úr sveitarstjórnarmálum þar sem ég var oddviti í 12 ár og af störfum á Alþingi frá 2021, nýtist vel í því hlutverki. Ég hef starfað í Framsókn frá unga aldri og skynja vel hjarta flokksins og fólksins í landinu. Sem varaformaður mun ég leggja áherslu á að styrkja tengslin við grasrótina, skerpa áherslur og tryggja að það sem við ákveðum verði fylgt eftir af festu,“ skrifar Stefán Vagn ennfremur en færsluna má sjá í heild sinni hér að neðan. Facebook/Stefán Vagn Stefánsson Fréttin hefur verið uppfærð.
Framsóknarflokkurinn Alþingi Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Innlent Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Innlent Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Innlent Fleiri fréttir Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Sjá meira