Vilhjálmur Bergsson er látinn Magnús Jochum Pálsson skrifar 8. janúar 2026 14:41 Vilhjálmur Bergsson í myndlistarstúdíói sínu með málverk í bakgrunni. Myndlistarmaðurinn Vilhjálmur Bergsson lést á dvalarheimilinu Hjallatúni í Vík í Mýrdal, mánudaginn 5. janúar 2026, 88 ára að aldri.
Fjölskylda Vilhjálms greindi frá andlátinu en Vilhjálmur lætur eftir sig uppkomin son, sonardóttur og bróður auk frændsystkina. Vilhjálmur Bergsson fæddist í Grindavík 1937 og sótti myndlistarnám í Reykjavík á sjötta áratugnum. Að loknu stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1958 hélt Vilhjálmur til Kaupmannahafnar þar sem hann hélt áfram myndlistarnámi frá 1958 til 1960. Þaðan lá leiðin til Parísar þar sem hann stundaði nám við Académie de la Grande Chaumière á árunum 1960 til 1962. Vilhjálmur hengir upp eitt verka sinna.Listasafn Reykjanesbæjar Vilhjálmur varð félagi í SÚM-hópnum 1969 og formaður hans frá 1971-1972. Hann dvaldi í Kaupmannahöfn á árunum 1963-1966 og 1972-1977, í Madríd 1967-1968 og í París 1977-1978. Vilhjálmur bjó og starfaði í Düsseldorf í Þýskalandi frá 1983 til 2000 og var búsettur í Grindavík á árunum 2000-2023. Síðustu tvö ár var aðsetur hans í Vík í Mýrdal. Vilhjálmur hefur haldið tugi einkasýninga á verkum sínum, m.a. í Gallerí SÚM, Norræna húsinu, Listasafni ASÍ, Listasafni Reykjavíkur og í Galerie AP, Kaupmannahöfn. Þá hefur hann tekið þátt í fjölda samsýninga á Íslandi, í Bandaríkjunum og Evrópu. Tvö verka Vilhjálms. Listasafn Reykjanesbæjar stóð fyrir yfirlitsýningunni Hulduefni á verkum Vilhjálms á liðnum vetri. Þar mátti sjá yfir fimmtíu verk frá 1959 til fyrstu ára þessa áratugar; olíumálverk voru í meirihluta en einnig voru á sýningunni tölvuverk, vatnslitaverk og teikningar. Þar mátti sjá yfir hvað tæknilegu færni og þekkingu hann bjó yfir og hvernig verk hans þróuðust gegnum árin. „Einu má slá föstu, með skynsemi einni leysir manneskjan ekki lífsgátuna. Hversu víðtækt er skynsvið hennar? Eru heilar víddir, þegar allt kemur til alls, utan seilingar? Það skiptir í rauninni ekki sköpum, heldur hitt, að vera trúr sínu eðli og þeirri óvissu, sem er hlutskipti þess,“ sagði Vilhjálmur Bergsson árið 1996.
Myndlist Andlát Grindavík Mýrdalshreppur Mest lesið Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Lífið Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Íslandi Bíó og sjónvarp Útilegumaðurinn býður nú meira en ferðavagna og útivistarbúnað Lífið samstarf Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Lífið „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Lífið Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Lífið Árlega greinast 2.146 einstaklingar: Svona nýtist þinn stuðningur Lífið samstarf „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ Tónlist Svansvottaðar gæðaíbúðir þar sem hugsað er fyrir hverju smáatriði Lífið samstarf Er bíllinn klár fyrir veturinn? Kíktu á vetrartékklista Bílanausts Lífið samstarf Fleiri fréttir Menningarsprautur í hvísluleik Kát á kynfræðslukarnivali Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Ástfangin pör á Djöflum Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels? Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Málverk af Danakonungi vekur athygli Þura Stína nýr stjórnandi HönnunarMars Skvísur í svakalegu stuði á Svikasögum Frægir í fjöri yfir framtíðinni Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Kanónur komu saman í Hveragerði Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Íslenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Sjá meira