Ótrúlegur öldugangur og margt að mestu horfið Gríðarleg ölduhæð var við Reynisfjöru í morgun í stórstreymi og segir leiðsögumaður að útsýnispallur og gangvegur við fjöruna séu að mestu horfnir á braut. Þá er annað skiltið auk þess horfið á braut. Innlent 23.2.2026 21:08
Umferðartafir á meðan rútunni er komið burt Björgunarsveitir vinna nú að því að koma rútu sem fór út af þjóðveginum við Reynisfjall um helgina í burtu. Búast má við töfum á umferðinni næsta klukkutímann vegna þessa. Innlent 23.2.2026 17:34
Rúta full af ferðamönnum fór út af veginum Rúta full að ferðamönnum rann út af veginum við Reynisfjall í morgun. Engin meiðsl urðu á fólki. Innlent 22.2.2026 13:41
Vilhjálmur Bergsson er látinn Myndlistarmaðurinn Vilhjálmur Bergsson lést á dvalarheimilinu Hjallatúni í Vík í Mýrdal, mánudaginn 5. janúar 2026, 88 ára að aldri. Menning 8. janúar 2026 14:41
Kvartar til umboðsmanns og vonar að Vegagerðin sjái að sér Sveitarstjóri Mýrdalshrepps segir að sveitarfélagið muni senda kvörtun til umboðsmanns Alþingis vegna viðbrögðum Vegagerðarinnar við sjávarflóðum sem hann segir lengi hafa ógnað byggðinni í Vík. Innlent 21. desember 2025 16:01
Vegagerðin segir flóðin í Vík fyrirséð Fyrri flóð hafa veikt sjávarkambinn í Vík í Mýrdal með þeim afleiðingum að sjór gengur lengra inn á land en áður, jafnvel í veðrum sem teljast ekki slæm. Vegagerðin segir að þetta hafi verið fyrirséð þróun. Innlent 21. desember 2025 10:27
„Að öllu óbreyttu mun þjóðvegurinn fara í sundur“ Sveitarstjóri Mýrdalshrepps kveðst vonsvikin vegna þess sem hann lýsir sem aðgerðarleysi stjórnvalda þegar það kemur að því að reisa sjóvarnir austan við Vík. Að öllu óbreyttu muni þjóðvegurinn fara í sundur að hans mati. Innlent 20. desember 2025 12:40
„Við látum alltaf taka okkur í bakaríið á endanum“ Veðurfræðingur Vegagerðarinnar segir brýnt að bregðast við miklum sjógangi við Vík í Mýrdal og að ekki megi sofa á verðinum. Sjór gekk yfir þjóðveginn í gær sem geti haft alvarlegar afleiðingar í för með sér. Innlent 19. desember 2025 13:42
Gefa út litlausa viðvörun Veðurstofan varar við snörpum vindhviðum á morgun undir Eyjafjöllum, í Mýrdal og Öræfum. Í tilkynningu á vef stofnunarinnar kemur fram að varasamt sé að aka um svæðið á ökutækjum sem taka á sig mikinn vind. Innlent 6. desember 2025 15:39
Hjúkrunarfræðingurinn sem gerðist kúabóndi „Það eru rosalega margir kostir sem fylgja því að búa úti á landi. Einn af þeim er allt stressið sem maður losnar við. Lífið í sveitinni er hægara en mér finnst það samt vera innihaldsríkara á svo margan hátt,“ segir Hugrún Sigurðardóttir, 28 ára bóndi í Eystri- Pétursey í Mýrdalshreppi, en hún hefur slegið í gegn á Tiktok að undanförnu þar sem hún veitir fylgjendum sínum innsýn í daglegt líf í sveitinni. Lífið 23. nóvember 2025 20:02
Bjarga Gunnfaxa með því að flytja inn samskonar flugvél Vinir Gunnfaxa hafa ákveðið að kaupa samskonar flugvél frá Bandaríkjunum til að skipta á henni og Flugfélagsþristinum sem fluttur var á Sólheimasand í sumar. Þeir hafa hafið fjársöfnun í því skyni að bjarga Gunnfaxa af sandinum og koma honum á Samgöngusafnið á Skógum. Innlent 10. nóvember 2025 21:45
Harpa Elín Haraldsdóttir er látin Harpa Elín Haraldsdóttir, forstöðumaður Kötluseturs í Vík í Mýrdal, er látin, 45 ára að aldri. Innlent 4. nóvember 2025 07:59
Hringvegurinn opinn á ný Hluta Þjóðvegar 1 var lokað á tveimur stöðum á Suðurlandi vegna veðurs. Gular veðurviðvaranir eru í gildi víða um land. Opnað var aftur fyrir umferð um veginn rétt fyrir klukkan eitt. Innlent 31. október 2025 08:53
Skjálfti 3,2 að stærð í Mýrdalsjökli Skjálfti 3,2 að stærð varð í Mýrdalsjökli klukkan 00:41 í nótt. Innlent 29. október 2025 08:03
Öflugasti skjálfti í Mýrdalsjökli frá árinu 2023 Nokkuð öflug skjálftahrina hófst í Mýrdalsjökli um klukkan 10:30 í dag og mældust nokkrir skjálftar yfir þremur að stærð. Sá stærsti, sem var 4,4 að stærð, var öflugasti skjálfti á svæðinu frá því í maí 2023 þegar skjálfti að stærð 4,8 mældist þar. Innlent 20. október 2025 16:48
Kröftug skjálftahrina í Mýrdalsjökli Um klukkan hálf ellefu hófst kröftug hrina jarðskjálfa í Mýrdalsjökli. Nokkrir skjálftar mældust yfir þremur að stærð og þeim hafa fylgt nokkrir eftirskjálftar. Innlent 20. október 2025 11:04
Slapp með skrekkinn við myndatöku í Reynisfjöru Enn eitt myndskeiðið af ferðafólki koma sér í klandur í Reynisfjöru hefur vakið mikla athygli undanfarna daga á samfélagsmiðlum. Enginn virðist sem betur fer hafa slasast alvarlega. Innlent 13. október 2025 12:07
Glæsileg Regnbogahátíð í Vík alla helgina Það iðar allt af lífi og fjöri þar sem gleðin er í fyrirrúmi í Vík í Mýrdal um helgina því þar fer fram Regnbogahátíð, sem er samfélagshátíð íbúa í Mýrdalshreppi. Lífið 11. október 2025 12:16
Sveitarstjóri Mýrdalshrepps vill verða ritari Einar Freyr Elínarson, sveitarstjóri Mýrdalshrepps, hefur ákveðið að gefa kost á sér í embætti ritara Framsóknar á miðstjórnarfundi 18. október næstkomandi. Innlent 2. október 2025 11:55
3,2 stiga skjálfti í Mýrdalsjökli Skjálfti af stærðinni 3,2 mældist í Mýrdalsjökli rétt eftir klukkan eitt í nótt. Nokkrir minni eftirskjálftar fylgdu í kjölfarið. Innlent 25. september 2025 06:19
Heimsótti heimaslóðirnar 52 árum eftir nauðlendinguna Flugmaðurinn Greg Fletcher, sem nauðlenti Douglas Dakota-flugvél á Sólheimasandi árið 1973 og bjargaði þannig lífi allra um borð, heimsótti í gær gamlar heimaslóðir á Ásbrú í Reykjanesbæ. Með honum í för var Halla Tómasdóttir forseti Íslands. Innlent 13. september 2025 11:27
Feðgar alsælir með fyrsta rafmagnsvörubílinn Það var merkilegur dagur hjá þeim feðgum, Auðberti Vigfússyni og Vigfúsi Pál Auðbertssyni þriðjudaginn 2. september, því báðir átti þeir afmæli en Auðbert varð þá 85 ára en hann hefur gert út vörubíla í 53 ár og nú er hann að upplifa enn eina stór breytinguna og þróunina, rafmagn, sem orkugjafa í stað olíu. Afhending nýja rafmagnsvörubílsins fór fram hjá fyrirtækinu Landfara í Mosfellsbæ en það má geta þess að fyrst feðgarnir voru á annað borð að kaupa sér rafmagnsvörubíl þá skelltu þeir sér líka á einn nýjan átta hjóla olíubíl í leiðinni. Sem sagt, tveir splunkunýir vörubílar í Vík í Mýrdal. Innlent 4. september 2025 13:04
Gunnfaxi ekki á safnið nema annar þristur fáist á sandinn Samgöngusafnið á Skógum fær ekki þristinn Gunnfaxa til varðveislu nema það takist að útvega landeigendum Sólheimasands aðra DC 3-flugvél til að sýna ferðamönnum á sandinum. Þetta er meginefni svars sem stjórn Loðmundar, landeigendafélags Ytri-Sólheima, hefur sent Vinum Gunnfaxa, áhugahópi um verndun gamallar Douglas Dakota-flugvélar Flugfélags Íslands. Innlent 28. ágúst 2025 20:40
Enginn vilji taka ábyrgð á því hvenær eigi að loka Reynisfjöru Hlíf Ingibjörnsdóttir leiðsögumaður segir að hún kom að Reynisfjöru snemma í morgun hafi aðstæður verið gríðarlega erfiðar, en svæðinu hafi þrátt fyrir það ekki verið lokað. Hún hafi haft samband við lögreglu sem hafi sagt að það væri ekki búið að taka ákvörðun um hver tæki ábyrgð á því að loka svæðinu ef svo bæri undir. Innlent 26. ágúst 2025 21:26