Mistök ollu því að sumir fengu ekki boð Magnús Jochum Pálsson skrifar 8. janúar 2026 15:22 Ársæll Guðmundsson, skólameistari Borgarholtsskóla, og Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, voru meðal þeirra sem fengu ekki boð í nýársboð forseta Íslands. Vísir Nýtt boðskerfi sem embætti forseta Íslands tók til notkunar í ár olli því að að fólk sem átti að fá boð í nýársboð forseta fékk það ekki. Meðal þeirra eru Katrín Jakobsdóttir og Ársæll Guðmundsson, skólameistari Borgarholtsskóla. Forsetaritara þykir ákaflega miður að svo hafi farið og biður hlutaðeigandi afsökunar.
Í morgun var fjallað um nýársboð Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, sem fór fram þann 6. janúar síðastliðinn. Tæplega sex hundruð manns var boðið, fjölbreyttum hópi embættismanna, fulltrúa hinna ýmsu hópa og annarra. Athygli vakti að þekkt nöfn vantaði á listann, þar með talið nokkra fyrrverandi ráðherra. Fréttastofa sendi fyrirspurn til Sifjar Gunnarsdóttur, forsetaritara, til að forvitnast fyrir um það hvers vegna Katrínu Jakobsdóttur, fyrrverandi forsætisráðherra, og Ársæli Guðmundssyni, skólameistara Borgarholtsskóla, hefði ekki verið boðið á Bessastaði. „Boðslistinn sem lá til grundvallar nýársmóttöku forseta Íslands 6. janúar síðastliðinn er sá sami og löng hefð er fyrir. Eina undantekningin er að alþingismönnum var ekki boðið í ár, heldur var haldin sérstök móttaka fyrir þá á Bessastöðum 1. desember síðastliðinn,“ sagði í svari Sifjar. Í ár hefði embættið tekið til notkunar nýtt boðskerfi þar sem gestum var boðið í fyrsta sinn að velja rafrænt á hvaða tíma þeir vildu þiggja boð í móttökuna. Við yfirfærslu listans milli kerfa áttu sér stað mistök þannig að upplýsingar misfórust. Afleiðingar þess voru að ákveðnir einstaklingar sem áttu að fá boð, fengu það ekki. „Forsetaritara finnst ákaflega leitt að þessi mistök hafi átt sér stað og biður alla hlutaðeigandi innilega velvirðingar,“ sagði einnig í svari Sifjar. Fyrir utan nöfn Katrínar og Ársæls liggur ekki fyrir heildarlisti yfir þá sem féllu milli skips og bryggju. Vinna á yfirferð listans er hafin en vegna ferðalags forseta til Vestmannaeyja verður afrakstur hennar ekki klár fyrr en eftir helgi.
Forseti Íslands Halla Tómasdóttir Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Fleiri fréttir Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Sjá meira