Hilmar Smári: Gott að spila aftur í Garðabænum Hjörvar Ólafsson skrifar 11. janúar 2026 22:43 Hilmar Smári Henningsson sækir í átt að körfu Grindvíkur. Vísir/Diego Hilmar Smári Henningsson snéri aftur í lið Stjörnunnar eftir dvöl sína í Litáen þegar liðið lagði Grindavík að velli í VÍS-bikar karla í körfubolta í kvöld. Hilmar Smári hélt til Litáen í kjölfar þess að hafa orðið Íslandsmeistari með Stjörnunni en lék í Stjörnutreyjunni að nýju í sigrinum gegn Grindvíkingum. „
Það er ofboðslega góð tilfinnig að klæðast Stjörnutreyjunni á nýjan leik og frábært að koma inn í svona hörkuleik. Við erum að vinna 23 stiga sigur á liði sem hefur verið nær ósigrandi í deildinni í vetur og koma okkur í undanúrslit í bikarnum sem er sterkt,“ sagði Hilmar Smári Henningsson, sem snéri til baka í lið Stjörnunnnar á dögunum, að leik loknum. „Við spiluðum öfluga vörn og það var hátt orkustig á þeim enda vallarins sem skilaði sér í því að við gátum sótt hratt í bakið á þeim í kjölfarið á unnum boltum. Við spiluðum af mikilli ákefð í um það bil 35 mínútur og hleyptum þeim aldrei inn í leikinn að neinu viti. Það er mjög jákvætt,“ sagði Hilmar Smári enn fremur. „Þetta var mjög skemmtilegur leikur að spila. Hart tekist á að og það er bara gaman af því. Ég hef gaman að því að leikmenn berjist inni á vellinum og þannig á það að vera. Það sem gerðist hér eftir leikinn er hins vegar eitthvað sem á ekki að sjást og á ekki að vera partur af leiknum. Ég reyndi að hjálpa Khalil eftir það sem hann lenti í og þetta á ekki að endurtaka sig eftir leik hjá okkur,“ sagði hann. „Ég er bara mjög spenntur fyrir komandi tímum í Garðabænum. Við erum með hörkulið sem ætlar að berjast um þá titla sem í boði eru. Nú er ég bara kominn með fullan fókus á það að gera það sem í mínu valdi stendur til þess að hjálpa liðinu við að lyfta bikurum,“ sagði Hilmar Smári um framhaldið.
VÍS-bikarinn Stjarnan Mest lesið Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Enski boltinn „Ronaldo er elsta frekjudolla í heimi“ Sport Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Handbolti Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn Tekur strax við sjöunni af Ronaldo Fótbolti Fleiri fréttir Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Haukar létu Fjölni bíða eftir fyrstu stigum tímabilsins Sigurganga Tindastóls í Evrópu heldur áfram Setti silfurliðið í sjötta sæti: Nýr þjálfari og þynnri hópur „Ég hef miklar áhyggjur af Valsstelpunum“ „Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ „Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Grænn Rúnar dró Grindavík Meiri pressa á sterkara KR-liði Lebron talaði hreint út Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Njarðvík spáð toppsætinu og nýliðarnir verma botninn Martin frábær í sigurleik Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Losa Leonard eftir refsinguna Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Stærsta körfuboltakona heims gnæfir yfir mótherja sína Lakers á undan Bulls að reisa styttu af Phil Jackson Falko farinn frá ÍR Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Sjá meira