„Eftir síðasta mót sögðu þeir bara strax að þeir vildu fá Ísland“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. janúar 2026 08:31 BJarki Már Elísson og Aron Pálmarsson fagna með íslensku áhorfendunum á HM fyrir þremur árum þegar Ísland spilaði einnig í Kristianstad. Vísir/Vilhelm Íslenska handboltalandsliðið er nálægt því að vera á heimavelli á Evrópumótinu í handbolta sem hefst með leik á móti Ítölum á föstudagskvöldið.
Riðill íslenska liðsins er auðvitað spilaður í Svíþjóð en hann fer fram í Kristianstad þar sem íslenska landsliðið og íslenskir stuðningsmenn þekkja vel til eftir heimsmeistaramótið 2023. Sterkar teningar hafa verið á milli borgarinnar og Íslands undanfarin ár og það fór einkar vel um íslenska stuðningsfólkið fyrir þremur árum. Tinna Mark Antonsdóttir Duffield er tengiliður mótshaldara í Kristianstad í Svíþjóð fyrir EM og hún var í viðtali við handbolta.is. Tinna er líka eiginkona Ólafs Guðmundssonar, fyrrum landsliðsmanns í handbolta. Hún fer yfir í viðtali við íslensku handboltasíðuna hversu miklu máli það skipti Kristianstad að fá riðilinn til borgarinnar. Tengingar á milli Kristianstad og Íslands „Mótshaldarar sóttu sem sagt um að fá að halda mótið og að fá riðilinn sem Ísland væri í. Eftir síðasta mót sögðu þeir bara strax að þeir vildu fá Ísland. Svo eru náttúrlega alltaf tengingar á milli Kristianstad og Íslands,“ sagði Tinna Mark. „Það hafa verið margir Íslendingar í Kristianstad, ekki bara í handboltanum heldur líka í fótboltanum. Það eru margir læknar hérna þannig að það er svolítil íslensk tenging í þessum bæ,“ sagði Tinna. Kvennafótboltalið félagsins hefur verið með marga Íslendinga í sínu liði í meira en áratug. Þeir sóttu hart eftir því „Þeir vildu ólmir fá Íslendingana aftur og sóttu um það. Það eru kannski ekki opinberar upplýsingar, ég veit það ekki, en það skiptir kannski ekki öllu máli. Þeir sóttu hart eftir því, að fá að halda mótið og þá að fá riðil Íslands,“ sagði Tinna en það má lesa allt viðtalið hér.
EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Fótbolti Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Sjá meira