Skammdegið víkur með hækkandi sól Kristján Már Unnarsson skrifar 12. janúar 2026 22:11 Í fréttum Sýnar er því lýst hvernig hækkandi sól er að ryðja burt skammdeginu. Sýn/skjáskot Dagsbirtan í Reykjavík í dag varði fimm mínútum lengur en í gær og hefur daginn núna lengt um rúma klukkustund í borginni frá stysta degi ársins. Lenging dagsins er mismunandi eftir því hvar menn eru staddir á landinu en landsmenn ættu samt flestir að vera farnir að finna fyrir því að skammdegið sé að víkja.
Í kvöldfréttum Sýnar er brugðið á skjáinn myndum sem teknar voru í Reykjavík í dag upp úr klukkan hálftvö en þá var sól hæst á lofti. Birtan frá sólinni er orðin áberandi meiri en hún var á stysta degi ársins fyrir þremur vikum enda er hún búin að hækka talsvert á lofti frá vetrarsólstöðum. Í Reykjavík náði sólin bara 2,7 gráður upp á sjóndeildarhringinn þann 21. desember en fer svo upp í 4,6 gráður á morgun, 13. janúar. Í Grímsey, nyrstu byggð landsins, náði sólin aðeins hálfa gráðu upp fyrir sjóndeildarhring á stysta degi ársins. Á morgun fer hún þar í 2,3 gráður. Hér má sjá dæmi um hvernig sólin fer hækkandi á sjóndeildarhringnum og hvað sólarhæð á hádegi er mismunandi eftir stöðum á landinu.grafík/Hjalti Freyr Ragnarsson Í Norðfirði er sólarhækkunin frá 1,7 gráðu upp í 3,6 gráður. Í Vestmannaeyjum, syðstu byggð lands, sem býr við minnsta skammdegið, er sólin búin að hækka úr 3,4 gráðum upp í 5,3. Og sólarhækkunin verður hröð fram til 1. febrúar. Í Reykjavík fer sólin níu gráður yfir sjóndeildarhring um mánaðamótin, í Grímsey 6,6 gráður, á Norðfirði í átta gráður og í Vestmannaeyjum verður sólarhæðin 9,7 gráður þann 1.febrúar. Það er stundum talað um að lenging dagsins fyrst eftir vetrarsólstöður sé bara hænufet á dag. En núna er birtulengingin farin að gerast miklu hraðar, í Reykjavík yfir fimm mínútur milli daga. Í Reykjavík 21. desember varði dagsbirtan frá klukkan 11:22 til 15:29 eða í rúmar fjórar klukkustundir. Á morgun, 13. janúar, telst dagur vera frá klukkan 10:59 til 16:14 eða í fimm klukkstundir og fimmtán mínútur. Þetta er lenging um eina klukkustund og átta mínútur. Í Grímsey varði dagsbirtan í rúmar tvær klukkustundir á vetrarsólstöðum en á morgum í fjórar klukkstundir. Þetta er lenging um nærri tvær klukkustundir. Dagurinn er lengstur í syðstu byggðum landsins. Daginn lengir hins vegar hraðast í nyrstu byggðum.Grafík/Hjalti Freyr Ragnarssson Norðfirðingar njóta dagsbirtu á morgun í tæpar fimm klukkustundir, þar er lengingin ein klukkustund og nítján mínútur, og Eyjamenn fá dagsbirtuna í fimm og hálfa klukkstund á morgun, lenging dagsins þar er um ein klukkustund. Í Reykjavík 21. janúar verður dagurinn orðin nærri sex stunda langur, búinn að lengjast um nærri tvær klukksutundir, og 1. febrúar orðinn yfir sjö stunda langur, lengingin um þrjár klukkustundir. Grímseyingar njóta birtunnar í yfir fimm klukkustundir þann 21. janúar og í nærri sex og hálfa klukkustund þann 1. febrúar. Þá verður lenging dagsins þar orðin yfir fjórar klukkustundir. Norðfirðingar verða komnir með tæplega sjö klukkustunda langan dag þann 1. febrúar og Eyjamenn vel yfir sjö stunda dag. Þessar tölur segja okkur það í stuttu máli að skammdegið mun víkja hraðar á næstu dögum og það má telja yfirstaðið í lok mánaðarins, eins og nánar er lýst hér:
Sólin Geðheilbrigði Heilsa Klukkan á Íslandi Vísindi Reykjavík Grímsey Fjarðabyggð Vestmannaeyjar Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Innlent Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Erlent Fleiri fréttir Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Sjá meira