Gæsluvarðhald Grikkjans framlengt Árni Sæberg skrifar 13. janúar 2026 13:44 Maðurinn fannst látinn í íbúð að Skjólbraut. Vísir/Vilhelm Gæsluvarðhald yfir grískum karlmanni, sem grunaður er um að hafa ráðið portúgölskum manni bana á Skjólbraut í Kópavogi í nóvember, hefur verið framlengt um fjórar vikur.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Það var sunnudaginn 30. nóvember sem karlmaður frá Portúgal fannst látinn á heimili sínu á Kársnesinu í Kópavogi. Nágrannar fylgdust með lögreglubílum drífa að og var tæknideild lögreglu að störfum í húsinu í lengri tíma. Grískur karlmaður sem sætir nú gæsluvarðhaldi var handtekinn nokkrum dögum síðar en sleppt þegar stutt gæsluvarðhald rann út. Hann var svo handtekinn á ný innan við sólarhring síðar og úrskurður í gæsluvarðhald þann 10. desember. Gæsluvarðhald það var framlengt þann 17. desember til dagsins í dag. Líkt og Vísir greindi frá fyrr í dag telur lögreglan sig vera komna með skýra mynd af atburðum í húsinu að Skjólbraut. Sem áður segir hefur gæsluvarðhald yfir grunuðum morðingja verið framlengt og fjórar vikur en það var gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Að sögn lögreglufulltrúa eru það helst niðurstöður utanaðkomandi rannsókna sem eru útistandandi í rannsókn málsins.
Dularfullt mannslát við Skjólbraut í Kópavogi Kópavogur Lögreglumál Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Ferðamenn koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Fleiri fréttir Ferðamenn koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Sjá meira