Silja sú fyrsta og eina til þessa: „Ég er íþróttasjúk“ Aron Guðmundsson skrifar 15. janúar 2026 08:00 Silja Úlfarsdóttir, umboðsmaður Vísir/Bjarni Silja Úlfarsdóttir er fyrsti og eini íslenski umboðsmaðurinn til þessa sem er vottaður af Alþjóða frjálsíþróttasambandinu. Hún er að eigin sögn íþróttasjúk og ætlar sér að hjálpa til við að finna fleiri íþróttahetjur hér heima og koma þeim á framfæri. „
Mér finnst okkur vanta fleiri íþróttahetjur hérna heima,“ segir Silja í viðtali hjá íþróttadeild Sýnar. „Ég er alltaf einhvern veginn að leita leiða til þess að finna þær, koma þeim á framfæri og þess háttar. Miðað við allt sem ég er að gera dags daglega í lífinu þá passar þetta bara mjög vel þar inn,“ segir Silja. „Umboðsskrifstofan mín heitir Klefinn Agency og ég er ekkert bara að leitast eftir því að vinna með frjálsíþróttafólki, heldur einnig íþróttafólki úr öðrum greinum. Mig langar að reyna koma þeim á framfæri, búa til tekjur fyrir þau og hjálpa þeim að komast í samstörf. Lyfta þeim upp því þá fáum við fleiri fyrirmyndir, það auglýsir íþróttagreinarnar og vonandi verður þá bara allt of mikið að gera hjá ykkur íþróttafréttamönnunum,“ segir Silja. Hefur setið alls staðar við borðið Silja hefur eins og hún kemur sjálf inn á komið víða við á sínum ferli en brýtur nú blað í sögunni með því að gerast umboðsmaður, sá fyrsti og eini af íslensku þjóðerni sem er vottaður af Alþjóða frjálsíþróttasambandinu. Eftir að hafa sjálf átt frábæran feril sem íþróttakona hefur hún síðan þá miðlað reynslu sinni með ýmsum hætti. Silja Úlfarsdóttir á Meistaramóti Íslands 2006 „Ég er náttúrulega bara íþróttasjúk. Er búin að vera íþróttakona, búin að vera sölu- og markaðsstjóri íþróttavörumerkis og búin að halda stóra viðburði. Ég er einhvern veginn búinn að sitja alls staðar við borðið en held að þetta hafi verið eini auði stóllinn. Ég er þjálfari líka og allt þetta. Ég vil sjá öðrum vegna vel, vil að íþróttafólk fái plássið sitt og vil að þið öll vitið hvað við eigum ótrúlega mikið af flottu íþróttafólki í öllum íþróttagreinum.“ Og nýtur hún góðs af tengslum frá fyrri tíð við umboðsmanninn þekkta, Paul Doyle, sem var á sínum tíma þjálfari frjálsíþróttakonunnar Guðrúnar Arnardóttur sem var tekinn inn í heiðurshöll ÍSÍ árið 2022 og á enn Íslandsmet í 400 metra grindahlaupi. „En ég er samt heppin því þegar að ég bjó í Bandaríkjunum á sínum tíma, eftir háskólanám mitt þar, fór ég og æfði með þjálfara Guðrúnar Arnardóttur, Paul Doyle, sem var þá einnig stærsti umboðsmaður í heimi í frjálsum íþróttum. Ég naut góðs af því að vera á hliðarlínunni með honum, aðstoða hann og hjálpa til. Hann var mjög þreyttur á öllum spurningunum mínum og veit enn að ég er á þeim stað. En hann ætlar sem sagt að vera minn mentor í þessu og er enn með allt frjálsíþróttafólkið sem þú þekkir á sínum snærum. Hann opnar dyrnar fyrir mig, gaf mér tengiliði og ég fékk aðgang að hans gögnum. Með allt þetta í höndunum verð ég að prófa þetta.“ Fyrirspurnir hrúgast inn Silja ætlar að einbeita sér að íslensku íþróttafólki fyrst um sinn, hjálpa þeim að ná lengra í gegnum umboðsmennskuna eftir að hafa hlotið vottun frá Alþjóða frjálsíþróttasambandinu. „Ég ætla fyrst að læra að synda. Ég ætla að einbeita mér á Íslendinga núna en WhatsAppið mitt er að springa af því nú er nafnið mitt komið inn á einhvern gagnagrunn og það eru hlauparar frá Kenía og Nígeríu sem eru að biðja mig um að hjálpa sér. Ég ætla aðeins að læra þetta, gera þetta vel áður en ég horfi eitthvað lengra.“ En af hverju hefur ekki verið starfandi íslenskur umboðsmaður í þessum heimi þar til núna? „Ég bara veit það ekki. Kannski voru kröfurnar ekki eins miklar á mótum áður fyrr. Ég hef vitað af umboðsmönnum síðan ég byrjaði í frjálsum og byrjaði að fara erlendis. Ég hef engin svör við því en þetta er komið núna allavegana.“
Frjálsar íþróttir ÍSÍ Mest lesið Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Íslenski boltinn ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ „Þetta er bara einn leikur í einu“ Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Fór út í bíl og náði í byssu Messi klæddist Como-treyju Skagamenn á vergangi og af hverju skrifa fótboltamenn ekki á íslensku? Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Sjá meira