Íslendingar unnu gull, silfur og brons í Austurríki Ágúst Orri Arnarson skrifar 14. janúar 2026 18:00 Sáttir og sælir sigurvegarar Croski Cup. Karlalandslið Íslands í alpagreinum átti frábæran keppnisdag í Gaal í Austurríki og hreppti öll verðlaunin í stórsvigi.
Gauti Guðmundsson fagnaði sigri en hann kom í mark á tímanum 2:14,10. Bjarni Þór Hauksson varð annar, einum hundraðshluta úr sekúndu hægari en Gauti. Matthías Kristinsson varð svo þriðji á tímanum 2:14,25. Þeir félagar voru ekki eins snöggir í fyrri ferðinni en skíðuðu frábæra seinni ferð og komust á verðlaunapallinn. Árangurinn í dag var mikilvægur fyrir möguleika þeirra á þátttökurétti á Vetrarólympíuleikunum en 18. janúar er síðasti dagurinn til að skora stig inn á Ólympíulistann. Á morgun keppa þeir í svigi í Gaal, áður en liðið heldur til Rogla í Slóveníu, þar sem keppt verður í tveimur svigmótum dagana 17. og 18. janúar. Ísland á nú þegar eitt sæti á leikunum fyrir karlmann og eitt fyrir konu í alpagreinum, og árangurinn í Gaal og Rogla mun skipta sköpum fyrir þá. Jón Erik Sigurðsson og Tobias Hansen voru einnig á meðal keppenda í Gaal en Jón Erik hafnaði í 7. sæti og Tobias í 17. sæti. Úrslit mótsins í Gaal í Austurríki má finna hér. Íslendingarnir unnu gull, silfur og brons. „Frábært er að sjá hvernig markviss vinna og öflugt prógram landsliðsþjálfaranna, Hauks Þórs Bjarnasonar og Marko Špoljaric, skilar sér í stöðugum og sterkum árangri hjá liðinu“ segir á vef Skíðasambands Íslands. Landslið Íslands í alpagreinum.
Skíðaíþróttir Mest lesið Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Fótbolti Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Fótbolti „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Handbolti Fékk drauminn uppfylltan eftir MND greiningu Sport ÍBV samdi við bandarískan hermann Handbolti Sjáðu markaveislu hjá bæði Manchester United og Bayern München í gær Fótbolti United aldrei í vandræðum Fótbolti Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Körfubolti Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Fótbolti Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Handbolti Fleiri fréttir Besta frjálsíþróttafólk heims mætist í nýju móti Yfir hundrað þúsund áhorfendur mættu á NFL-leik í Ástralíu ÍBV samdi við bandarískan hermann Róbert Frosti með slitið krossband og á leið í aðgerð Sjáðu markaveislu hjá bæði Manchester United og Bayern München í gær Fékk drauminn uppfylltan eftir MND greiningu Dagskráin í dag: Golf, Formúla og Hollywood Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag United aldrei í vandræðum Þórsarar komnir á blað Sextán íslensk mörk í Meistaradeildinni Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Bakverðir til bjargar Frakkar vilja Infantino burt Stærsta körfuboltakona heims gnæfir yfir mótherja sína Tvö íslensk hæfileikabúnt til Molde Dagbjartur í góðum málum á úrtökumóti DP World Tour Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta „Vona að það verði enginn munur á vellinum“ Fullkomin frumraun Ídu sem sló í gegn með þrennu Yamal gæti farið út af sporinu og ÍBV frumsýnir Kana Góðar og slæmar fréttir fyrir íslensku liðin sem ætla í Evrópudeildina Á ekki að snúast um karla gegn konum Sjá meira