Og ári síðar er málið enn „í ferli“ Eva Hauksdóttir skrifar 15. janúar 2026 11:30 Í íslenskri stjórnsýslu gildir svokölluð málshraðaregla. Hún felur það í sér að ákvörðun skuli tekin „svo fljótt sem unnt er“. Og hversu fljótt er svo unnt að afgreiða mál? Oft er sá tími langt frá því að vera nálægt þeim skilningi sem borgarinn sem bíður niðurstöðu leggur í orðið „fljótt“. Málshraði í íslenskri stjórnsýslu er efni í heila bók en hér verða aðeins nefnd örfá dæmi. Fjölskyldusvið sýslumanns Frá því að sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu berst beiðni um breytingu á umgengni eða forsjá og lögheimili, líða allt að átta mánuðir frá því að byrjað er að vinna í málinu. Eftir hina löngu bið fer fram sáttameðferð sem gefur aðilum færi á að tefja málið um margar vikur. Þegar sáttamaður er orðinn sannfærður um að sátt náist ekki er gefið út vottorð um árangurslausa sáttameðferð og málinu vísað frá sýslumanni. Þá fyrst er hægt að höfða dómsmál. Algengt er að allan þennan biðtíma séu börn í óþolandi aðstöðu þar sem engin regla er á umgengni við foreldra. Það tekur sýslumann einnig 6-8 mánuði að afgreiða beiðni um meðlagsúrskurð, og þá á Tryggingastofnun eftir að setja greiðslur "í ferli". Lögreglan Frá því að lögregla fær mál til rannsóknar líða oft margir mánuðir þar til teknar eru lögregluskýrslur af sakborningi brotaþolum og vitnum. Afleiðingin er sú að farið er að fyrnast yfir minni skýrslugjafa, auk þess sem líklegt er að sakborningur hafi íhugað vandlega hvað hann ætlar að segja og að vitni hafi talað saman og haft áhrif hvert á annað. Það þarf ekki að vera með ráðum gert. Minningar breytast þegar við heyrum útgáfu annarra, án þess að við áttum okkur á því. Lögreglan veit það. Eftir að lögreglurannsókn lýkur geta svo liðið mánuðir og jafnvel ár þar til mál er fellt niður eða gefin út ákæra. Þetta á líka við þegar sakborningar og/eða brotaþolar eru börn eða með með þroskafrávik. Drátturinn hefur þau áhrif að öll fjölskylda sakbornings (og brotaþola þegar það á við) býr mánuðum eða árum saman við andlegt álag og kvíða sem hægt væri að komast hjá. Stundum verður töfin til þess að sakborningur fær vægari refsingu. Hún verður ekki til þess að brotaþoli fái hærri bætur. Útlendingayfirvöld Mikið hefur verið um það rætt hvað hælisleitendur séu mikil byrði á ríkissjóði. Og hverjum ætli það sé svo að kenna? Málsmeðferðartími Útlendingastofnunar í málum sem ekki sæta forgangsmeðferð er oft 9-12 mánuðir. Eftir það má reikna með mörgum mánuðum þar til Kærunefnd útlendingamála staðfestir úrskurðinn eða vísar honum aftur til Útlendingastofnunar. Á vefsvæði sem varðar málsmeðferðartíma kærunefndarinnar er að finna þær upplýsingar að nefndin sé gífurlega vandvirk en ekki er minnst orði á fjölda daga sem mál eru til meðferðar. Ég get þó upplýst að oft líða meira en sex mánuðir frá því að ákvörðun Útlendingastofnunar liggur fyrir og þar til kærunefndin úrskurðar. Á meðan bíður umsækjandinn í örvæntingu, oft fjarri fjölskyldu sinni. Eftir að brottvísun er staðfest geta svo liðið margar vikur eða jafnvel mánuðir þar til brottvísun er framfylgt eða umsækjandinn fær aðstoð við "sjálfviljuga heimför". Allan þennan tíma er hælisleitandinn á framfæri Íslenska ríkisins. Í flestum tilvikum er þetta vinnufært fólk sem vill vinna en kerfið býður ekki upp á það. Dæmi eru um fólki, sem ekki er talið flóttafólk í skilningi laga, hafi verið veitt dvalarleyfi af mannúðarástæðum vegna þess að það hefur þurft að bíða í 18 mánuði eða lengur eftir endanlegri niðurstöðu. Ýmis önnur stjórnvöld Ekki er þó svo að skilja að útlendingayfirvöld séu neitt seinvirkari en önnur stjórnvöld. Málsmeðferðartími úrskurðar- og kærunefnda er sjaldan skemmri en þrír mánuðir og oft lengri en hálft ár. Stundum gilda reglur um lengd málsmeðferðartíma en ef þær eru ekki virtar, þá hefur það engar afleiðingar. Í versta falli rannsakar Umboðsmaður Alþingis málið en það þýðir ekki að ástandið skáni, enda enginn sem sætir ábyrgð. Það getur líka tekið marga mánuði að fá leyfi fyrir ýmisskonar atvinnurekstri. Landlæknir á þó sennilega metið í lengd málsmeðferðar (eða það vona ég) en það tekur embætið allt að fjögur ár að afgreiða kvörtun vegna mistaka eða vanrækslu við veitingu heilbrigðisþjónusta. Ef niðurstaðan er sú að kvörtunin eigi við rök að styðjast taka við samningaumleitanir og jafnvel skaðabótamál fyrir dómi. Þolandinn er ellidauður áður en endanleg niðurstaða liggur fyrir. Engin úrræði Umboðsmaður Alþingis hefur það hlutverk að veita stjórnvöldum aðhald. Það þjónar þó takmörkuðum tilgangi að kvarta vegna óhóflegs málsmeðferðartíma til Umboðsmanns Alþingis. Ef mál er ennþá til afgreiðslu þegar kvörtun berst sendir umboðsmaður stjórnvaldinu fyrirspurn um stöðu máls en tekur enga afstöðu til þess hvort það hafi tafist óhóflega. Og þegar málinu er lokið hefur kvartandinn venjulega enga hagsmuni af því lengur að fá staðfestingu Umboðsmanns á því að brotið hafi verið gegn málshraðareglu. Auk þess sem málshraðaregla er almennt virt að vettugi í íslenskri stjórnsýslu gengur misvel, og oftar en ekki illa, að fá svör um það hvernær stjórnvaldið reikni með að skila niðurstöðu. Svör við fyrirspurnum um stöðu mála eru gjarnan "málið er í ferli", "umsóknin er í vinnslu", "það er ekki komið að afgreiðslu erindis" eða eitthvað álíka upplýsandi. Ef skýringar á drættinum eru á annað borð gefnar, eru það afsakanir eins og "vegna anna hjá embættinu …", "vegna mikils málafjölda hjá nefndinni …", "vegna manneklu hjá stofnuninni …", "vegna sumarfría starfsfólks …". Oft eru fyrirspurnir einfaldlega hunsaðar, enda hefur það engar afleiðingar þótt stjórnvöld sýni borgurunum lítilsvirðingu. Af hverju er ekki allt brjálað út af þessu? Af hverju er ekki einu sinni nein umræða um þetta á Alþingi, í sveitarstjórnum og í samfélaginu? Og af hverju heyrast ráðherrar aldrei tala um þessi lögbrot stofnana sem heyra undir þá, hvað þá að þeir geri eitthvað í málunum? Höfundur er lögmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Eva Hauksdóttir Stjórnsýsla Hælisleitendur Mest lesið Halldór 31.10.26 Halldór Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Það er ekki nóg að hækka róminn Þorgrímur Sigmundsson Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Óðinn heldur fyrir heila augað Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar skrifar Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar Skoðun Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir skrifar Skoðun Það er ekki nóg að hækka róminn Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Sjá meira
Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir Skoðun
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun
Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun
Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar
Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir Skoðun
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun
Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun