764 – landamæralaus tala skelfilegs ofbeldis Jón Pétur Zimsen skrifar 16. janúar 2026 07:32 Númer póstfangs í Texas er nú orðið samnefnari viðurstyggilegrar starfsemi sem meðal annars gengur út á að festa börn og ungmenni í net glæpamanna í gegnum samfélagsmiðla og kúga þau til að gera hræðilega hluti, til dæmis að fremja ofbeldiglæpi, skaða sig sjálf, sína nánustu og/eða gæludýr. 764 er ekki hefðbundin skipulögð glæpastarfsemi, en hún notar sömu aðferðafræði og svokallað crime as a service; dreifða ábyrgð, verkaskiptingu og netmiðaða framkvæmd. Það gerir brotin bæði alvarlegri og erfiðari í sönnun. Undirritaður heimsótti nýverið bæði Europol og Eurojust, þar sem fram kom að Svíþjóð er vagga þessarar aðferðafræði og að hún hafi smitast hratt til Noregs og Danmerkur. Einhver mál hafa komið upp hérlendis og líklega eru mun fleiri sem þagað er um, enda eru sum mál eingöngu rafræn á milli gerenda og þolenda, til dæmis þegar um sjálfsskaða er að ræða. Hvaða gildrur setja ofbeldismennirnir upp? Ég tek hér tvö algeng dæmi, en lykilatriðið er að komast yfir persónuupplýsingar þolenda og nota þær sem hluta af ógninni. Börn og ungmenni rekast á „tilboð“ á samfélagsmiðlum, til dæmis 10.000 krónur fyrir að kasta flugeldi inn um glugga og taka verknaðinn upp. Þetta getur virst spennandi og greiðslan bónus. Til að taka við henni þurfa þau að gefa upp persónuupplýsingar sem var markmið ofbeldismannanna. Þá er greitt fyrir önnur „minniháttar“ verkefni og safnað er í svokallaðan kúgunarbanka. Í kjölfarið er hótað birtingu upplýsinga nema tekið sé þátt í grófara ofbeldi, sem ítrekað hefur endað í grimmilegu ofbeldi og jafnvel morðum. Annað dæmi er þegar ofbeldismenn leita uppi hópa á netinu þar sem vanlíðan er samnefnari, svo sem tengda átröskunum. Þar eru stúlkur oftast skjallaðar og kaffærðar í ,,ást“ og hrósi. Í skjóli trausts senda þær myndir þar sem sjálfsskaði sést og/eða nektarmyndir, kúgunarbankinn er orðinn til. Síðan er til dæmis boðist til að senda mat eða snyrtivörur, sem krefst heimilisfangs. Þegar það liggur fyrir hefjast kröfur um sífellt grófara myndefni og/eða sjálfsskaða á stúlkum, systkinum eða gæludýrum og allt tekið upp. Þetta eru tvö raunveruleg dæmi sem ótrúlega mörg börn og ungmenni geta sogast inn í. Ég er nokkuð viss um að mörg börn og flest ungmenni þekki talnarununa 764 og hafi jafnvel verið boðið eitthvað eða fengið „falleg“ skilaboð. Europol kallaði eftir vitundarvakningu almennings í Evrópu. Óafturkræfir hlutir gerast hratt, hlutir sem geta eyðilagt líf. Foreldrar, verum á varðbergi því netið virðir engin landamæri. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jón Pétur Zimsen Sjálfstæðisflokkurinn Börn og uppeldi Lögreglumál Ofbeldi barna Ofbeldi gegn börnum Mest lesið Hvers vegna venjulegt launafólk á að segja JÁ? Margrét Högnadóttir Skoðun Ég er ekki Evrópusinni Óðinn Freyr Baldursson Skoðun Hvers vegna „nei“ er eina rökrétta svarið þann 29. ágúst Eggert Sigurbergsson Skoðun Þetta snýst um aðild Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Það sem gögnin fundu ekki Elliði Vignisson Skoðun Landlægur misskilningur um þjóðaratkvæðagreiðslu Hjörtur Hjartarson Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir Skoðun Hvaða kröfur eigum við að gera? Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Króna eða evra? Bolli Héðinsson Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson Skoðun Skoðun Skoðun Íslenskir vefir á faraldsfæti Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Ég er ekki Evrópusinni Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun Hjarðarbólsoddi Oddur Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta snýst um aðild Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna „nei“ er eina rökrétta svarið þann 29. ágúst Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hvaða kröfur eigum við að gera? Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna venjulegt launafólk á að segja JÁ? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar Skoðun Er kominn tími á „Íslenska landklasann“? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Um hvað er hægt að semja? Jónas Már Torfason skrifar Skoðun Sumarið, samveran og samspil taugakerfa Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Þegar peningarnir og pólitíkin mæta nýjum veruleika Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Bíp... bíp... bíp… Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Króna eða evra? Bolli Héðinsson skrifar Skoðun Dauðans alvara – fölsuð lyf og ólögleg lyfsala Alma D. Möller,Rúna Hauksdóttir skrifar Skoðun Hvað er samfélagsmiðill? Anna Laufey Stefánsdóttir skrifar Skoðun Stöðugleiki í heljargreipum Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Landlægur misskilningur um þjóðaratkvæðagreiðslu Hjörtur Hjartarson skrifar Skoðun Það sem gögnin fundu ekki Elliði Vignisson skrifar Skoðun Eru Íslendingar afglapar í samningatækni? Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Baldur snýr heim á Breiðafjörð Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar allir bera ábyrgð? Snorri Birgisson skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru samningaviðræður Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Dagur, bannað að plata! Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Íslenska sumarveðrið dýrmæt auðlind? Gunnar Salvarssson skrifar Skoðun Við þurfum ekki að kaupa gervigreindarfullveldið að utan Hafsteinn Einarsson skrifar Skoðun Fullvinnsla heima, tollfrjálsir markaðir og raunhæf leið til að styrkja Krónuna og landsbyggðina Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ég hélt að ég væri bara óvenju hrætt foreldri Heiðrún V. Ingudóttir skrifar Skoðun Siðferðilegt aflátsbréf - Um kerfisbundna notkun góðgerðarstarfs til að kaupa sér starfsleyfi Sigurður Sigurðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar
Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar
Skoðun Fullvinnsla heima, tollfrjálsir markaðir og raunhæf leið til að styrkja Krónuna og landsbyggðina Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Siðferðilegt aflátsbréf - Um kerfisbundna notkun góðgerðarstarfs til að kaupa sér starfsleyfi Sigurður Sigurðsson skrifar