Eigum eftir að sjá hvort Guðbrandur bæti upp fyrir hegðun sína Bjarki Sigurðsson skrifar 16. janúar 2026 22:41 Drífa Snædal talskona Stígamóta. Vísir/Vilhelm Talskona Stígamóta segir afsögn hafa verið eina valkostinn í máli þingmanns flokksins sem hefur nú játað að hafa sóst eftir því að kaupa vændi. Hann sagði af sér þingmennsku eftir að honum var tilkynnt að fjallað yrði um málið. Formaður Viðreisnar segist vonsvikinn vegna málsins.
Guðbrandur Einarsson var kallaður til yfirheyrslu hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu árið 2012 vegna rökstudds gruns um vændiskaup. Í yfirlýsingu til fréttastofu sagðist Guðbrandur hafa haft samband við konu með vændiskaup í huga en honum hafi snúist hugur þegar komið var á staðinn. Þegar honum var tjáð að frétt um málið myndi birtast í dag sagði hann af sér þingmennsku. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, segist hafa fyrst heyrt af málinu seinnipartinn í gær. Hún hafi orðið vonsvikin. „Hann sjálfur er að axla ábyrgð í þessu erfiða máli. Með því er hann að gera rétt að mínu mati,“ segir Þorgerður. Settir þú einhverja pressu á hann að segja af sér eða var hann búinn að ákveða það sjálfur? „Þetta er hans ákvörðun að segja af sér. Nú hefur hann líka svigrúm til að líta inn á við og taka utan um fjölskylduna sína. Ég held að það sé líka það eðlilegasta sem maður hugsar um.“ Daði Már Kristófersson, varaformaður flokksins, var heldur ekki upplýstur um málið fyrr en í gær. „Þetta er auðvitað alvarlegt mál,“ segir Daði Már. „Ég tel að viðbrögð hans hafi verið rétt og skynsamleg en get annars ekki tjáð mig meira um það.“ Drífa Snædal, talskona Stígamóta, segir menn sem tilbúnir eru að kaupa vændi vera með það viðhorf að líkamar kvenna séu söluvara. „Hann hefur greinilega ætlað að brjóta kynferðisbrotalög. Það er það sem liggur fyrir núna, það sem við vitum. Og það er alvarlegt,“ segir Drífa. Afsögn hafi verið það eina í stöðunni. „Síðan vil ég nú segja það að ég er orðin ansi þreytt á því, og ég held það sé samfélaginu ekki til framdráttar, að þegar menn gerast sekir um kvenfyrirlitningu eða brot, að þeir segi af sér og mæti svo aftur til leiks eins og ekkert hafi í skorist eftir ár eða tvö. Ég er enn þá að bíða eftir manninum sem hefur manndóm í sér til þess að fara í samtal við samfélagið um hvernig hann komst á þennan stað og hvernig hann ætlar að vinda ofan af því. Hvernig hann ætlar að bæta fyrir hegðun sína. Það á eftir að sjá hvort Guðbrandur sé maður til þess,“ segir Drífa.
Viðreisn Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Vændi Alþingi Mál Guðbrands Einarssonar Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Fleiri fréttir Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Sjá meira