Snorri eftir stórsigur: „Í þessari stemningu og höll þarf ég ekki að segja mikið“ Aron Guðmundsson skrifar 18. janúar 2026 19:16 Snorri Steinn og aðstoðarþjálfari hans Arnór Atlason ræða málin í leik kvöldsins Vísir/EPA Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari íslenska karlalandsliðsins í handbolta, segir tveggja mínútna brottvísun, sem Ómar Ingi fékk í seinni hálfleik gegn Póllandi á EM, hafa kveikt í liðinu sem tók af skarið og sigldi heim stórsigri í kjölfarið.
Íslenska karlalandsliðið í handbolta vann öruggan átta marka sigur er liðið mætti Pólverjum í 2. umferð riðlakeppninnar á EM í handbolta í dag. Sigurinn kemur íslensku strákunum í kjörstöðu til að vinna riðilinn. Íslensku strákarnir áttu í töluverðum erfiðleikum með Pólverja á báðum endum vallarins framan af leik en eftir því sem leið á leikinn, sér í lagi seinni hálfleik, sýndu okkar menn mátt sinn og megin. Snorri Steinn, landsliðsþjálfari, segir að um erfiða fæðingu hafi verið að ræða, margt gott hafi verið við leik íslenska liðsins en líka hlutir sem hægt sé að framkvæma betur. „Við fáum svo ótrúlega byrjun á seinni hálfleik og í raun tvær mínútur sem Ómar sem kveikir í öllu húsinu og við einhvern veginn fylgjum með. Hvað sagðirðu við strákana í hálfleik? „Í þessari stemningu og þessari höll þarf ég ekki að segja mikið. Þetta snerist meira um að fara yfir taktíska hluti, líka bara að róa okkur. Mér fannst við alveg vera á pari, auðvitað hefðum við geta spilað aðeins betur og erum sammála um það. Það eru móment þarna sem við hefðum geta leyst betur. Við þurftum bara að halda í okkar, halda í þolinmæðina og þá myndi þetta koma. En að það hafi tekið svona stuttan tíma var ég ekki alveg sannfærður um.“ Skynjarðu meiri anda í liðinu en oft áður? „Það getur vel verið. Ég hef alltaf skynjað anda í liðinu en þú vinnur leiki og þegar við erum að spila á heimavelli með ótrúlega stuðningsmenn og sturlaða stemningu, þá eðlilega hrífast menn með og ganga á lagið. Ég get alveg tekið undir að það hefur verið góð holning á okkur, ég held okkur líði alveg ágætlega vel með það sem við erum að gera. En þeir sem þekkja aðeins til í íþróttum vita að þetta er fljótt að breytast í báðar áttir. Við þurfum að halda okkur á jörðinni, slaka á en auðvitað að njóta líka. Fara svo að einbeita okkur að næsta leik. Eftir að hafa átt erfitt uppdráttar gegn Ítalíu í fyrstu umferð átti Haukur Þrastarson frábæra innkomu í leik íslenska landsliðsins í kvöld. Það hlýtur að kæta landsliðsþjálfarann? „Engin spurning. Bæði innkoman hjá honum og Viggó af bekknum er frábært að fá og mikilvægt fyrir okkur í vonandi löngu móti. Ég hef aldrei efast um Hauk, fyrir fram var leikurinn gegn Ítalíu leikur sem myndi kannski ekki henta honum og ég hugsaði hann meira fyrir þennan leik. Það er mjög gott að hann sé kominn í gang og hafi átt góðan leik.“ Framundan er lokaleikur riðilsins gegn Ungverjum þar sem gefst færi á að tryggja toppsætið og fara með stig inn í milliriðla. „Við sögðum það fyrir mót að við vildum vinna riðilinn. Það er klárlega möguleiki og mikilvægt upp á framhaldið að gera. Verkefnið er ljóst, það verður erfitt og við verðum að gera vel, ef ekki betur til þess að vinna Ungverjana á þriðjudaginn.“
Landslið karla í handbolta EM karla í handbolta 2026 Handbolti Tengdar fréttir „Er í góðu standi og klár í hvað sem er“ „Það tók smá tíma að hrista þá af okkur og við vorum kannski að fara smá illa með boltann og dauðafæri í fyrri hálfleik,“ sagði Haukur Þrastarson eftir sigur Íslands gegn Pólverjum á EM í handbolta í dag. 18. janúar 2026 19:12 Einkunnir Strákanna okkar á móti Póllandi: Velkominn Haukur og Ýmir í vígahug Ísland vann átta marka sigur á Póllandi, 23-31, í öðrum leik sínum á Evrópumótinu í handbolta karla. Eftir nokkuð jafnan fyrri hálfleik keyrðu Íslendingar yfir Pólverja í þeim seinni. Margir leikmenn Íslands spiluðu skínandi vel í dag. 18. janúar 2026 19:06 Tölfræðin á móti Póllandi: Gísli með ellefu stoðsendingar Íslenska karlalandsliðið í handbolta vann sannfærandi átta marka sigur á Póllandi í öðrum leik sínum á Evrópumótinu í handbolta 2026. Það var nóg af flottum tölum hjá íslensku strákunum. 18. janúar 2026 19:01 Mest lesið „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Íslenski boltinn Liverpool - Manchester City | Fyrsti leikurinn eftir dóm City Enski boltinn Íslenskir dómarar úti í kuldanum: „Þetta er auðvitað svekkjandi“ Fótbolti Pínleg mistök Neuer gáfu hraðasta mark í sögu deildarinnar Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Þurfti að gefa í þegar maginn sagði til sín Sport Bestu tilþrifin: Plakat á Höfn, ótrúleg karfa nýliðans og svakalegur þristur Körfubolti Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Enski boltinn Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Enski boltinn Segir Barcola ekki í vandræðum Enski boltinn Líktu Álftanesi við Bayern München Körfubolti Fleiri fréttir Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Sjá meira
„Er í góðu standi og klár í hvað sem er“ „Það tók smá tíma að hrista þá af okkur og við vorum kannski að fara smá illa með boltann og dauðafæri í fyrri hálfleik,“ sagði Haukur Þrastarson eftir sigur Íslands gegn Pólverjum á EM í handbolta í dag. 18. janúar 2026 19:12
Einkunnir Strákanna okkar á móti Póllandi: Velkominn Haukur og Ýmir í vígahug Ísland vann átta marka sigur á Póllandi, 23-31, í öðrum leik sínum á Evrópumótinu í handbolta karla. Eftir nokkuð jafnan fyrri hálfleik keyrðu Íslendingar yfir Pólverja í þeim seinni. Margir leikmenn Íslands spiluðu skínandi vel í dag. 18. janúar 2026 19:06
Tölfræðin á móti Póllandi: Gísli með ellefu stoðsendingar Íslenska karlalandsliðið í handbolta vann sannfærandi átta marka sigur á Póllandi í öðrum leik sínum á Evrópumótinu í handbolta 2026. Það var nóg af flottum tölum hjá íslensku strákunum. 18. janúar 2026 19:01