Dagur henti tveimur leikmönnum sínum upp í stúku Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. janúar 2026 19:53 Það er engin miskunn hjá Degi Sigurðssyni. Þú verður að standa þig ef þú ætlar að vera með króatíska landsliðinu á EM. EPA/Bo Amstrup Króatar eru á leiðinni í milliriðla með Íslendingum eftir sigur á Hollendingum í kvöld en lærisveinar Dags hafa unnið tvo fyrstu leiki sína á Evrópumótinu í handbolta.
Blaðamaður króatíska fréttamiðilsins Vecernji sagði að landsliðsþjálfarinn Dagur hefði gefið sínum mönnum skýr skilaboð fyrir leikinn í kvöld eftir dapra frammistöðu á móti Georgíu í fyrsta leik. „Við verðum áfram í Svíþjóð! Það er ljóst hvað Dagur vildi og sjáið hverjir koma næst,“ sló króatíski blaðamaðurinn Damir Mrvec upp í kvöld. Blaðamaðurinn benti líka á það að með þessum úrslitum gætu leikmenn króatíska liðsins skemmt sér á hvíldardegi með því að fara á Evrópudeildarleik í fótboltanum þar sem Dinamo heimsækir Midtjylland í næstu viku. Sá fyrsti í ellefu ár „Króatíska handboltalandsliðið er komið áfram í milliriðil á Evrópumeistaramótinu á Skandinavíuskaga. Eftir nauðsynlegan sigur unnum við Holland 35-29. Við þurftum að hafa mikið fyrir þessum sigri – Hollendingar pressuðu á okkur stærstan hluta leiksins en svo náðum við yfirhöndinni á síðustu tuttugu mínútunum. Það dugði til sigurs, þess fyrsta gegn Hollandi í ellefu ár,“ skrifaði Mrvec. Blaðamaðurinn benti á þá staðreynd að Dagur henti tveimur leikmönnum sínum upp í stúku eftir slaka frammistöðu í fyrsta leik. Myndi ekki umbera slaka frammistöðu „Dagur Sigurðsson gerði það ljóst að hann myndi ekki umbera slaka frammistöðu. Strax eftir leikinn gegn Georgíu sendi hann tvo leikmenn upp í stúku. Veron Nacinovic átti að vera mikilvægur hlekkur í vörn okkar en gegn Georgíu sýndi hann ekki nálægt því þá hörku sem hann sýnir með Kiel,“ skrifaði Mrvec og hélt áfram. „Sama gerðist hjá honum á heimsmeistaramótinu í Króatíu þegar hann var settur út í kuldann eftir tapið gegn Egyptalandi. Luka Lovre Klarica gerði mörg mistök, tapaði mörgum boltum og skaut fram hjá, svo hann fékk þau „verðlaun“ að enda uppi í stúku líka,“ skrifaði Mrvec.
EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Beta aldrei upplifað annað eins Fótbolti „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Enski boltinn Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Körfubolti Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót Fótbolti Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Fleiri fréttir Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Sjá meira