Knorr lofaði Alfreð: Enginn egóisti og róaði okkur Sindri Sverrisson skrifar 20. janúar 2026 08:33 Alfreð Gíslason ræðir við sína menn í leiknum við Spán í gær þar sem Þjóðverjar höfðu yfirhöndina allan tímann. Getty/Sina Schuldt Eftir gagnrýni Juri Knorr á Alfreð Gíslason, eftir tapið gegn Serbíu á EM í handbolta, töluðu þeir vel um hvorn annan í gær þegar Þýskaland vann Spán og tryggði sér toppsætið í sínum riðli.
Sigurinn gegn Spáni í gærkvöld þýðir að tapið gegn Serbum skiptir engu máli fyrir Þjóðverja sem nú taka tvö stig með sér áfram í krefjandi milliriðil, eins og þeir hefðu óskað sér. Knorr hafði sagt eftir tapið gegn Serbum að það væri „auðvitað pirrandi að sitja á bekknum og geta ekki hjálpað“ eftir að Alfreð hafði sparað krafta hans í seinni hálfleiknum. En Knorr sagði svo í gær að Alfreð vildi að menn tjáðu sig og að allt væri í góðu þeirra á milli. „Ég met það mikils að hann tekur engu persónulega. Hann er ekki með stórt egó, hann setur árangurinn ofar öllu, hann vill að við tölum saman og ræðum málin,“ sagði Knorr eftir sigurinn gegn Spáni. Þá sagðist hann hafa fundið fyrir „öðruvísi afslöppun“ hjá Alfreð: „Það smitaðist kannski yfir á okkur,“ sagði Knorr sem átti flottan leik í sókn Þýskalands í gær. Ekki nein vandræði með Knorr Alfreð var á sama máli og Knorr um að allt væri í góðu þeirra á milli, og taldi að ummæli hans hefðu létt af pressunni á liðinu eftir tapið óvænta gegn Serbum. „Ég á alls ekki í neinum vandræðum með hann, við tölum reglulega saman. Þess er krafist af öllum að þeir segi sína skoðun,“ sagði Alfreð í viðtali við ZDF: „Þetta var aldrei vandamál. Okkur tókst mjög vel að létta pressunni af liðinu,“ bætti hann við. Stefan Kretzschmar, sem gagnrýnt hafði Alfreð eftir tapið gegn Serbum, sagði á Instagram eftir leikinn í gær: „Landsliðsþjálfarinn er ekki langrækinn. Juri Knorr fékk fullt traust. Og hann stóð við orð sín og fylgdi því eftir. Í leikhléinu stóð hann ekki aðeins við orð sín heldur tók líka af skarið. Þetta var toppleikur hjá Juri.“
EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Beta aldrei upplifað annað eins Fótbolti „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Enski boltinn Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Körfubolti Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót Fótbolti Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Fleiri fréttir Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Sjá meira