„Besta íslenska landslið sem við höfum mætt“ Sindri Sverrisson skrifar 20. janúar 2026 13:06 Ísland og Ungverjaland hafa mæst oft á síðustu árum. Ungverjar höfðu betur þegar liðin áttust við á EM fyrir tveimur árum. EPA/Anna Szilagyi Spænski þjálfarinn Chema Rodríguez hefur átt góðu gengi að fagna sem landsliðsþjálfari Ungverjalands gegn Íslandi. Hann segist hins vegar aldrei hafa mætt sterkara íslensku liði en nú.
Rodríguez passaði sig á að mæra íslenska liðið fyrir leikinn mikilvæga í Kristianstad í kvöld, á EM karla í handbolta, þar sem tvö afar dýrmæt stig eru í boði fyrir keppnina í milliriðli. Ungverja dreymir ekki síður en Íslendinga um sæti í undanúrslitum og keppnin um að komast þangað hefst formlega í kvöld, klukkan 19:30. Ungverjar unnu öruggan sigur á Íslendingum á EM fyrir tveimur árum, í Þýskalandi, og höfðu einnig betur þegar liðin mættust í Kristianstad á HM fyrir þremur árum, þegar Ísland glutraði niður góðu forskoti. „Ég tel að íslenska liðið í ár sé það besta sem við höfum mætt á síðustu sex árum,“ sagði Rodríguez við ungverska miðilinn Nemzeti Sport og sparaði ekki hrósið í garð íslenska liðsins. Ekki hissa ef Ísland spilaði um verðlaun „Þeir eru með tvær heimsklassa skyttur í hægri og vinstri skyttustöðunni, áður var aðeins ein í hvorri, og leikstjórnendurnir, Gísli Kristjánsson og Janus Smárason, eru líka framúrskarandi. Hornamennirnir þurfa ekki mikið pláss til að skora og hópurinn er styrktur með leikmönnum sem geta spilað margar stöður, stöðugum varnarmönnum og markvörðum. Ísland er ekki aðeins sigurstranglegasta liðið í riðlinum heldur einnig á mótinu og það kæmi mér ekki á óvart ef þeir myndu keppa um verðlaun. Auðvitað er eitt hvað stendur á blaði og annað hvað við sjáum á vellinum – við munum gera okkar besta og ef einhver vill sigra okkur þarf hann að leggja allt í sölurnar,“ sagði Rodríguez. Spánverjinn Chema Rodriguez er þjálfari Ungverjalands og hefur stýrt liðinu frá árinu 2022.EPA/Adam Warzawa Hann telur að fjarvera línutröllsins Bence Bánhidi geri að verkum að Íslendingar fari bjartsýnni en ella inn í leikinn. Ísland sé hins vegar mótherji sem Ungverjar þekki betur en Ítalíu og Pólland. „Við höfðum fleiri myndbandsupptökur og höfum spilað oftar við þá, þannig að við þekkjum þá betur. Allar upplýsingar voru tiltækar. Á hinn bóginn þekkja þeir okkur líka betur en Pólverjar og Ítalir. Þar sem Bence Bánhidi spilar ekki með okkur halda þeir örugglega að þeir eigi góða möguleika á að sigra okkur í þetta skiptið. Við verðum að verjast af hörku, koma í veg fyrir að þeir fái hraðaupphlaup og tapa boltanum sem sjaldnast. Þeir spila á gríðarlegum hraða og ef við leyfum þeim að ná nokkurra marka forskoti verður verkefnið enn erfiðara. Við verðum að halda í við þá allan tímann,“ sagði Rodríguez.
EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Mest lesið Beta aldrei upplifað annað eins Fótbolti „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Körfubolti „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Enski boltinn Mexíkó – Suður-Afríka | HM fer af stað í Mexíkóborg Fótbolti Heimsendi HM-dómarinn fær að dæma úrslitaleik Fótbolti Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót Fótbolti Fleiri fréttir Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Sjá meira