Real Madrid skoraði sex mörk í Meistaradeildinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. janúar 2026 22:19 Stórstjörnurnar Kylian Mbappe og Vinicius Junior fagna einu af sex mörkum Real Madrid í kvöld. Getty/Aitor Alcalde Real Madrid fór á kostum á Bernabeu í Meistaradeildinni í kvöld og vann 6-1 stórsigur á franska félaginu Mónakó.
Það hefur gengið á ýmsi hjá Real Madrid undanfarnar vikur en stjörnurnar voru á deginum sínum í kvöld. Allar stærstu stjörnurnar, Kylian Mbappé, Vinicius Junior og Jude Bellingham, voru allar á skotskónum. Kylian Mbappé skoraði tvö fyrstu mörkin á fyrstu 26 mínútum leiksins en staðan var 2-0 í hálfleik. Franco Mastantuono kom Real í 3-0 á 51. mínútu eftir sendingu frá Vinicius Junior en fjórða markið var sjálfsmark fjórum mínútum síðar. Vinicius Junior kom Real síðan í 5-0 á 63. mínútu en Jordan Teze minnkaði muninn. Sjötta og síðasta markið skoraði Jude Bellingham eftir sendingu frá Federico Valverde á 80. mínútu. Eftir þennan sigur er Real Madrid komið upp í annað sætið í töflunni en reyndar sex stigum á eftir Arsenal. Viktor Bjarki Daðason var í byrjunarliðinu í 1-1 jafntefli við Napoli á Parken en fór af velli á 36. mínútu. FCK missti Thomas Delaney af velli með rautt spjald á 35. mínútu og Viktor fór af velli í kjölfarið. Scott McTominay kom Napoli yfir á 39. mínútu en Jordan Larsson tryggði FCK jafntefli þegar hann fylgdi eftir vítaklúðri sínu. Cristian Romero og Dominic Solanke skoruðu mörk Tottenham í 2-0 sigri á Borussia Dortmund en þetta var langþráður sigur fyrir knattspyrnustjórann Thomas Frank. Dortmund var manni færri frá 24. mínútu þegar Daniel Svensson fékk rautt spjald. Evrópumeistarar Paris Saint-Germain töpuðu 2-1 á útivelli á móti portúgalska félaginu Sporting. Luis Suárez skoraði bæði mörk Sporting en Khvicha Kvaratskhelia jafnaði metin á 79. mínútu. Sigurmarkið kom á lokamínútu leiksins.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti „Lið sem enginn vill mæta núna“ Körfubolti Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Körfubolti Fleiri fréttir Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Sjá meira