Lærisveinar Dags spila bönnuðu lögin í klefanum Sindri Sverrisson skrifar 21. janúar 2026 17:01 Luka Cindric og félagar mæta Íslandi í Malmö, í milliriðlakeppninni á EM. EPA/Andreas Hillergren Luka Cindric, ein helsta stjarnan í liði Króata sem Dagur Sigurðsson stýrir, segir það heimskulegt af mótshöldurum að banna lög með Thompson á Evrópumótinu í handbolta.
Cindric segir alveg ljóst að Króatar muni hlusta á lög hins umdeilda Thompson, eða Marko Perkovic eins og söngvarinn heitir, og þó að þau fái ekki að heyrast í hátalarakerfinu í handboltahöllinni í Malmö þá muni leikmenn bara hlusta á lögin í rútunni og inni í búningsklefa. Króatar mæta Svíum í kvöld og tapliðið í þeim slag verður næsti mótherji Íslands, á föstudaginn. Sigurliðið mætir Íslendingum á sunnudaginn. Eins og fjallað var um síðasta sunnudag gerðu mótshaldarar þau mistök að spila lag með Thompson fyrir fyrsta leik Króata á EM, þegar þeir mættu Georgíu. Nokkuð sem lýst var sem hneyksli vegna þess hve umdeildur Thompson væri. Thompson hefur verið sakaður um að vera fasisti og að sumir lagatexta hans styðji við það. Þar megi meðal annars finna upphefð á verkum Ustasha hreyfingarinnar, fasískrar hreyfingar sem var þekkt fyrir þjóðernispólitík og ofbeldisfullar aðgerðir en hún var alþjóðlega tengd við nasista Þýskalands sem og fasista á Ítalíu, á tímum seinni heimsstyrjaldarinnar. Þess vegna hafa lög hans ekki fengið að hljóma á alþjóðlegum íþróttaviðburðum. Hann er hins vegar afar vinsæll hjá leikmönnum króatíska liðsins og var með Degi uppi á sviði í fagnaðarlátum í miðborg Zagreb fyrir ári, þar sem Króatar fögnuðu óvæntum HM-silfurverðlaunum. Og á meðan að Íslendingar kjósa að hlusta á „Lífið er yndislegt“ og syngja með á yfirstandandi Evrópumóti þá myndu Cindric og félagar vilja heyra lög Thompson. „Við hlustum bara á lögin hans í búningsklefanum og inni í rútu í staðinn,“ sagði Cindric við Aftonbladet í Svíþjóð. „Mér finnst þetta [bannið] bara heimskulegt. við þekkjum hann, okkur líkar við hann og við styðjum hann alltaf. Mér finnst rangt að banna eitthvað bara af því að hann elskar landið sitt og syngur um hve fallegt landið hans er. Lögin hans eru um landið okkar, sem við erum stolt af, og snúast ekki um að vera á móti öðrum löndum,“ sagði Cindric. „Ég vil ekki fara út í einhverja pólitík. En við erum vanir að heyra eitthvað svona um hann. Það skiptir ekki máli hvað aðrir segja, við munum alltaf spila lögin hans,“ sagði leikstjórnandinn þrautreyndi.
EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Fótbolti Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Sport Fleiri fréttir Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Sjá meira