„Langar að biðja Stólana afsökunar á því sem ég lét út úr mér í síðustu umferð“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 22. janúar 2026 21:58 Hjalti Þór Vilhjálmsson baðst afsökunar í viðtali eftir leikinn gegn ÍA í kvöld. vísir/hulda margrét Hjalti Þór Vilhjálmsson, þjálfari Álftaness, baðst afsökunar á ummælum sínum eftir leikinn gegn Grindavík þar sem hann sagði að Justin James væri á leið til Tindastóls.
James lék í kvöld sinn fyrsta leik með Álftanesi á þessu tímabili. Hann skoraði átján stig þegar liðið sigraði ÍA, 89-83. Álftanes tilkynnti um endurkomu James á sunnudaginn en tveimur dögum áður, eftir leikinn gegn Grindavík, sagði Hjalti að Bandaríkjamaðurinn myndi ganga í raðir Tindastóls. Formaður körfuknattleiksdeildar Tindastóls, Dagur Þór Baldvinsson, sagði ekkert til í þeim orðum Hjalta í samtali við Vísi á laugardaginn. Hjalti segist hafa komist illa að orði eftir leikinn í Grindavík. „Þetta var svolítið skakkt og illa orðað hjá mér. Mig langar að biðja Stólana afsökunar á því sem ég lét út úr mér í síðustu umferð,“ sagði Hjalti eftir leikinn í Kaldalónshöllinni á Álftanesi í kvöld. „Það var nú bara þannig að ég var nýbúinn að tapa leik og gerði einhvern veginn ráð fyrir því að Justin væri að fara þangað. Seinna um kvöldið fékk ég svo símtal um að Justin sé að koma til okkar. Það er ánægjulegt en ég biðst innilegrar afsökunar.“ En á föstudaginn hvort gerði Hjalti ráð fyrir því að James myndi fara til Álftaness eða Tindastóls? „Ég hélt að hann væri að fara þangað og sagði það í viðtali. En einhverra hluta vegna valdi hann okkur og stjórnin á hrós skilið fyrir að landa þessu,“ sagði Hjalti sem var að vonum sáttur með James eftir leikinn gegn ÍA en sá bandaríski skoraði afar mikilvæga þriggja stiga körfu undir lokin. „Hann er leiðtogi og maður fann það strax á fyrstu æfingunni hjá honum að hann væri kominn aftur. Hann lét menn heyra það,“ sagði Hjalti.
Bónus-deild karla UMF Álftanes Tindastóll Mest lesið Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Handbolti „stúkan er of þögul“ Fótbolti Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Danir andlausir gegn Kongó Fótbolti Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Handbolti „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Körfubolti Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið Handbolti Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Körfubolti Fleiri fréttir Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Sjá meira