Líkur Íslands á verðlaunum hafa snaraukist Sindri Sverrisson og Aron Guðmundsson skrifa 23. janúar 2026 13:00 Ísland mætir Króatíu í fyrsta leik sínum í milliriðlum EM í handbolta klukkan hálf þrjú í dag. Vísir/EPA Samkvæmt uppfærðu spálíkani eru nú tæplega 40% líkur taldar á því að Ísland komist í undanúrslit á EM karla í handbolta og spili þar með um verðlaun á mótinu. Áður voru líkurnar aðeins 20%.
Dr. Peter O‘Donoghue, prófessor við íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík, kynnti uppfært spálíkan sitt í dag í beinni útsendingu sem sjá mátti á Vísi. Upptöku má sjá neðst í greininni. Úrslitin úr riðlakeppninni á EM, og úr fyrstu leikjum milliriðils I, hafa nú verið tekin inn í spálíkanið og eftir 100.000 keyrslur er niðurstaðan sú að Danmörk sé nú líklegast til þess að landa heimsmeistaratitlinum, með 22% sigurlíkur, þrátt fyrir tapið óvænta gegn Portúgal. Liðið er þó bara örlítið líklegra en Frakkland (21%). Líkanið spáir því að lokastaðan á EM verði þessi: Danmörk Frakkland Svíþjóð Slóvenía Þýskaland Ísland Ungverjaland Portúgal Það þykir því líklegast að Svíþjóð og Slóvenía verði þau tvö lið sem komast áfram upp úr milliriðli Íslands, en strákarnir okkar þykja ekki langt undan. Áður var Íslandi raðað í 8. sæti og talið að Svíþjóð og Ungverjaland færu upp úr milliriðlinum í undanúrslit. Ekki miklar líkur á titlinum Taldar eru 3,3% líkur á að Ísland verði Evrópumeistari, 8% líkur á silfri og 28,3% líkur á að liðið komist í undanúrslit en tapi þar og spili um brons. Þá eru taldar 24,3% líkur á að Ísland spili um 5. sæti en 20,1% líkur á að liðið endi í 7. eða 8. sæti og 12,8% líkur á 9. eða 10. sæti. Loks eru aðeins 3,3% líkur á að liðið endi í 11. eða 12. sæti og ljóst er að liðið getur ekki endað neðar. Áður voru taldar 1,7% líkur á að Ísland ynni EM en 4% líkur á 2. sæti og 14,2% líkur á að liðið myndi spila um bronsverðlaunin. Strákarnir okkar hafa unnið alla þrjá leiki sína á mótinu til þessa, tóku tvö stig með sér í milliriðil og spila nú þýðingarmikinn leik gegn Króötum Dags Sigurðssonar klukkan hálf þrjú í dag. Í HR-stofunni í dag, sem sjá má hér að neðan, ræddu Kristján Halldórsson, kennari við íþróttafræðideild HR, Patrekur Jóhannesson, fyrrverandi landsliðsmaður í handbolta, og Arnar Pétursson, landsliðsþjálfari kvenna í handbolta, málin og fóru yfir spálíkanið. Þá bættist í hópinn Chris (Christopher Ian Curtis) dósent við íþróttafræðideild sem hefur starfað bæði í fræðasamfélaginu í um áratug og innan íþróttaheimsins síðustu 15 ár og sérhæft sig þar í næringarfræði íþróttafólks. Hann fjallaði um mikilvægi næringar fyrir íþróttafólk þegar leikið er svona þétt. Upptöku frá HR-stofunni má finna hér fyrir neðan:
EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Handbolti Tengdar fréttir „Virkar eins og maður sé að væla“ Aukinn hvíldartími strákanna okkar í handboltalandsliðinu gæti skipt sköpum er þeir mæta Króötum síðdegis í dag, að sögn Dags Sigurðssonar, þjálfara króatíska liðsins. 23. janúar 2026 08:00 Besta sætið um sóknarleikinn: „Að mínu mati dugar þetta ekki til“ Íslenska karlalandsliðið í handbolta hefur oft verið meira sannfærandi í sóknarleiknum en í sigrinum mikilvæga á móti Ungverjum í lokaleik riðilsins á EM í handbolta. Eftir leikinn velti Besta sætið því fyrir sér hvort við þurfum að hafa áhyggjur af sókninni í framhaldinu á mótinu. 22. janúar 2026 23:01 Elvar vildi ekki stela fjölskyldubílnum Elvar Ásgeirsson var kallaður inn í íslenska landsliðið í gær. Landsliðsþjálfararnir ákvaðu að hóa í Mosfellinginn eftir að Elvar Örn Jónsson meiddist. 22. janúar 2026 20:31 „Mig kitlar svakalega í puttana“ Þorsteinn Leó Gunnarsson var á meðal hressari manna í Malmö í dag eftir að hafa tekið fullan þátt í æfingu í fyrsta sinn í tíu vikur. 22. janúar 2026 19:00 „Ísland í betra formi en við höfum sýnt“ Dagur Sigurðsson býst við strembnum leik er hans menn í króatíska landsliðinu mæta Íslandi í fyrsta leik í milliriðli á EM á morgun. Sterka menn vanti í bæði lið. 22. janúar 2026 18:03 EM í dag: Slagsmál í Malmö og dónar í dinner EM í dag heilsar frá Malmö í dag enda er komið að fyrsta leik Íslands í milliriðli Evrópumótsins. 22. janúar 2026 17:32 Óðinn á eitt flottasta mark EM Handknattleikssamband Evrópu hefur nú valið fimm flottustu mörkin sem skoruð voru í riðlakeppni Evrópumótsins, í Svíþjóð, Danmörku og Noregi. Eitt markanna er íslenskt. 22. janúar 2026 14:00 „Ég er bara Króati á morgun“ Dagur Sigurðsson segir ávallt sérstakt að mæta Íslandi en hann mun stýra Króatíu gegn strákunum okkar á EM á morgun. 22. janúar 2026 11:01 Gísli Þorgeir sá fjórði stoðsendingahæsti á EM Riðlakeppninni á EM í handbolta lauk í gærkvöldi og þá er tilefni til að skoða tölfræðina áður en milliriðlarnir hefjast. 22. janúar 2026 11:30 Mest lesið „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Íslenski boltinn Liverpool - Manchester City | Fyrsti leikurinn eftir dóm City Enski boltinn Íslenskir dómarar úti í kuldanum: „Þetta er auðvitað svekkjandi“ Fótbolti Pínleg mistök Neuer gáfu hraðasta mark í sögu deildarinnar Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Þurfti að gefa í þegar maginn sagði til sín Sport Bestu tilþrifin: Plakat á Höfn, ótrúleg karfa nýliðans og svakalegur þristur Körfubolti Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Enski boltinn Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Enski boltinn Segir Barcola ekki í vandræðum Enski boltinn Líktu Álftanesi við Bayern München Körfubolti Fleiri fréttir Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Sjá meira
„Virkar eins og maður sé að væla“ Aukinn hvíldartími strákanna okkar í handboltalandsliðinu gæti skipt sköpum er þeir mæta Króötum síðdegis í dag, að sögn Dags Sigurðssonar, þjálfara króatíska liðsins. 23. janúar 2026 08:00
Besta sætið um sóknarleikinn: „Að mínu mati dugar þetta ekki til“ Íslenska karlalandsliðið í handbolta hefur oft verið meira sannfærandi í sóknarleiknum en í sigrinum mikilvæga á móti Ungverjum í lokaleik riðilsins á EM í handbolta. Eftir leikinn velti Besta sætið því fyrir sér hvort við þurfum að hafa áhyggjur af sókninni í framhaldinu á mótinu. 22. janúar 2026 23:01
Elvar vildi ekki stela fjölskyldubílnum Elvar Ásgeirsson var kallaður inn í íslenska landsliðið í gær. Landsliðsþjálfararnir ákvaðu að hóa í Mosfellinginn eftir að Elvar Örn Jónsson meiddist. 22. janúar 2026 20:31
„Mig kitlar svakalega í puttana“ Þorsteinn Leó Gunnarsson var á meðal hressari manna í Malmö í dag eftir að hafa tekið fullan þátt í æfingu í fyrsta sinn í tíu vikur. 22. janúar 2026 19:00
„Ísland í betra formi en við höfum sýnt“ Dagur Sigurðsson býst við strembnum leik er hans menn í króatíska landsliðinu mæta Íslandi í fyrsta leik í milliriðli á EM á morgun. Sterka menn vanti í bæði lið. 22. janúar 2026 18:03
EM í dag: Slagsmál í Malmö og dónar í dinner EM í dag heilsar frá Malmö í dag enda er komið að fyrsta leik Íslands í milliriðli Evrópumótsins. 22. janúar 2026 17:32
Óðinn á eitt flottasta mark EM Handknattleikssamband Evrópu hefur nú valið fimm flottustu mörkin sem skoruð voru í riðlakeppni Evrópumótsins, í Svíþjóð, Danmörku og Noregi. Eitt markanna er íslenskt. 22. janúar 2026 14:00
„Ég er bara Króati á morgun“ Dagur Sigurðsson segir ávallt sérstakt að mæta Íslandi en hann mun stýra Króatíu gegn strákunum okkar á EM á morgun. 22. janúar 2026 11:01
Gísli Þorgeir sá fjórði stoðsendingahæsti á EM Riðlakeppninni á EM í handbolta lauk í gærkvöldi og þá er tilefni til að skoða tölfræðina áður en milliriðlarnir hefjast. 22. janúar 2026 11:30