Mismælti sig harkalega í beinni útsendingu Ágúst Orri Arnarson skrifar 24. janúar 2026 14:00 Stine Dahmke segist ekki hafa svitnað svona mikið síðan í úrslitaleik Ólympíuleikanna 2024. Hin norska Stine Dahmke, ein sigursælasta handboltakona sögunnar, og eiginkona þýska landsliðsmannsins Rune Dahmke, mismælti sig illa þegar hún lagði sitt sérfræðimat á leik Þýskalands og Noregs sem fer fram í kvöld.
Stine Dahmke lagði skóna á hilluna árið 2024 og er að þreyta frumraun sína í sjónvarpi á EM 2026 og var í settinu í gærkvöldi þegar hitað var upp fyrir leik Noregs og Þýskalands. Þar ruglaðist hún óvart á stöðu bakvarðar, sem oft er kölluð tvistur, og klósettferðinni sem kölluð er númer tvö. „Hún ætlaði að segja að Sander Sagosen myndi halda tvistinum þeirra uppteknum en það kom eitthvað allt annað út“ útskýrði eiginmaður hennar, Rune Dahmke, í samtali við Bild. Sérfræðingarnir sem voru með henni í settinu áttu erfitt með halda í sér hlátrinum og á endanum þurfti bara að skipta yfir í auglýsingar. „Ég hef ekki svitnað svona mikið síðan í úrslitaleik Ólympíuleikanna 2024 [síðasta leiknum á ferlinum]“ sagði Stine Dahmke við Bild. Stine Oftedal Dahmke var lengi fyrirliði norska landsliðsins undir stjórn Þóris Hergeirssonar. EPA-EFE/Bo Amstrup Mágur hennar, Sander Sagosen, hefur eflaust getað hlegið að þessu líka með eiginkonu sinni, Hanna, systur Stine. Togstreitan verður eflaust mikil hjá þessari handboltafjölskyldu þegar mikilvægur leikur Þýskalands og Noregs fer fram í kvöld. Innan vallar, uppi í stúku og á sjónvarpsskjánum.
EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Enski boltinn Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Enski boltinn „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Íslenski boltinn Íslenskir dómarar úti í kuldanum: „Þetta er auðvitað svekkjandi“ Fótbolti Pínleg mistök Neuer gáfu hraðasta mark í sögu deildarinnar Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Þurfti að gefa í þegar maginn sagði til sín Sport Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Enski boltinn Bestu tilþrifin: Plakat á Höfn, ótrúleg karfa nýliðans og svakalegur þristur Körfubolti Segir Barcola ekki í vandræðum Enski boltinn Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Enski boltinn Fleiri fréttir Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Sjá meira