Á móti vasapeningum og gæfi barni aldrei debetkort Stefán Árni Pálsson skrifar 27. janúar 2026 13:01 Björn Berg fór yfir fjármálalæsi ungmenna í Íslandi í dag í gærkvöldi. Fjármálaráðgjafinn Björn Berg Gunnarsson er afar vinsæll og eftirsóttur í sínum störfum, enda talar hann ávallt um peninga og fjármál á mannamáli. Ísland í dag settist niður með Birni Berg og bað um góð ráð fyrir foreldra þegar kemur að fjármálum barna og ungmenna.
Óvænt hitamál og segir Björn Berg að foreldrar ættu að hætta að kvabba í skólunum um að kenna fjármálalæsi og taka málin í sínar eigin hendur. Kenna börnunum sjálfum og passa að umræður um peninga og fjármál séu ávallt á jákvæðum nótum. Í meðfylgjandi innslagi var farið yfir ýmis þroskastig barna, allt frá fæðingu til átján ára aldurs, og fáum góð ráð í hverju skrefi um hvernig má kenna börnum og ungmennum að fara vel með peninga. Markmiðið þegar til lengri tíma er litið er auðvitað að börnin verði fjárhagslega sjálfstæð þegar þau verða fullorðin og flytji einhvern tímann út úr foreldrahúsum. Stærðarinnar verkefni „Ég hef talsvert verið að bæði halda námskeið og svona aðeins að skrifa um nauðsyn þess að foreldrar taki ábyrgð á þessu sjálfir. Það er ekki lausn á neinu vandamáli að fussa og sveia yfir því að skólarnir séu ekki nógu duglegir. Og þá er þetta bara stærðarinnar verkefni sem allir foreldrar á landinu þurfa að taka mjög alvarlega og sjá til þess að börn þeirra geti staðið á eigin fótum og farið með peninga á hverju þroskastigi, sem getur auðvitað verið ákveðin kúnst,“ segir Björn en á maður að byrja frá fyrsta degi? „Ekkert endilega. Ég held að það sé ekkert nauðsynlegt. Þrátt fyrir að það sé mjög algengt á Íslandi að verið sé að spara fyrir börn, þá er það í rauninni ekkert sérstaklega nauðsynlegt. Það sem mun koma til með að gagnast þeim miklu frekar er að þeim sé kennt að gera þetta sjálf. Ég myndi kannski frekar hugsa um það að ein helsta forsenda þess að börnin muni geta haft það gott til lengri tíma litið er að foreldrarnir hafi það gott. Er það rétt að þau passi upp á sín fjármál? Að það sé ekki verið að steypa sér í skuldir vegna fæðingarorlofsins eða þess tíma sem barnið er ungt? Að svo sé gripið tækifærið þegar að krakkarnir eru orðnir nógu gamlir til þess að það sé aðeins hægt að byrja.“ Hér að neðan má sjá þáttinn í heild sinni.
Fjármál heimilisins Ísland í dag Mest lesið Diljá Mist á lausu Lífið Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Píparapæja selur pent „penthouse“ Lífið Costanza á klakanum Lífið Sahara Ray látin Lífið Pattra og Brynjar slá sér upp Lífið Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Lífið „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Lífið Fleiri fréttir Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Sjá meira