Kepptu í því að kveikja eld og klifra upp klifurturn Lovísa Arnardóttir skrifar 27. janúar 2026 14:01 Haldin var keppni milli dróttskáta (13-15 ára) um hvaða lið gæti slitið bandið fyrst með eldi. Daði Már Gunnarsson Vetrarmót Reykjavíkurskáta var haldið í tíunda sinn um helgina í Útilífsmiðstöð skáta á Úlfljótsvatni þar sem 120 skátar úr Reykjavík taka þátt í fjölbreyttri skátadagskrá. Sex skátafélög sendu fulltrúa í ár frá Garðbúum, Árbúum Vogabúum, Landnemum, Ægisbúum og Skjöldungum. Sjálfboðaliðarnir voru af öllum aldri en þeir yngstu voru 17 ára og þeir elstu á sjötugsaldri.
Markmið með mótinu er að kenna ungum skátum á að takast á við fjölbreyttar áskoranir að vetrarlagi og að efla samstarf milli skátafélaganna í Reykjavík. Þema helgarinnar var Ólympíuleikarnir og var keppt í alls kyns skátaþrautum eins og að klifra upp klifurturn, bogfimi og hvaða flokkur er fljótastur að kveikja bál. Hópurinn sem kom saman á mótinu.Daði Már Gunnarsson Vetrarmótið er skipulagt í sameiningu af öllum skátafélögunum úr Reykjavík og er fastur liður í skátastarfinu í Reykjavík. „Vetrarmótið er alltaf haldið árlega í lok janúar til að efla samskipti félaganna sem eru í Reykjavík og til að gefa skátum tækifæri á að upplifa ævintýri um hávetur og geta lært alls konar hluti tengda honum. Þetta er í 10. skipti sem það er haldið. Nú var þema mótsins Ólympíuleikar og voru haldnar margvíslegar keppnir um hvaða hópur væri t.d. bestur í klifri og meira,“ segir Daníel Þröstur Pálsson, ritari Skátasambands Reykjavíkur (SSR) og sveitaforingi Rs. Sela og frá Árbúum, í samtali við Vísi. Það þarf líka að borða.Daði Már Gunnarsson Skiptast á að fylgjast með kamínuninni í tjaldinu Hann segir þátttakendur hafa fengið ýmis tækifæri til útivistar og til dæmis hafi um 30 manns gist í tjaldi á mótinu. „Helsti munurinn á því að tjalda um veturinna miðað við sumrin er að tjöldin sem notuð eru á veturna eru með svokallaðri kamínu sem er í raun bara eldur í miðju tjaldinu. Það þarf alltaf einhver að vera vakandi um nóttina til að passa að eldurinn sé gangandi og að hann dreifist ekki úr sér. Þannig það skapast alltaf mikið kapp um að fá að vakta kamínuna fyrst eða síðast svo maður geti sofið sem mest,“ segir Daníel. Þátttakendur elda á eldi.Daði Már Gunnarsson Einu sinni hafi hann þurft að vakna sjálfur klukkan þrjú til að vakta kamínuna. „Ég mæli ekki með því. En fyrir þá sem ákvæða að nota venjulegt tjald þá skiptir mestu máli að taka með góða lopapeysu til að sofa í um nóttina og gott föðurland.“ Þátttakendur á mótinu.Daði Már Gunnarsson Það var hægt að æfa klifur.Daði Már Gunnarsson
Skátar Börn og uppeldi Reykjavík Mest lesið „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Lífið Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Lífið Steiney frumsýnir kærastann Lífið Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Lífið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Fleiri fréttir Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Sjá meira