Eru mannréttindi martröð? Þórarinn Snorri Sigurgeirsson skrifar 27. janúar 2026 16:32 Í nýlegri skoðunargrein á Vísi fjallar Gunnar Salvarsson, fyrrverandi skólastjóri, um skóla án aðgreiningar undir fyrirsögninni „martraðakenndur draumur“. Slík gífuryrði ein og sér sýna glöggt að með óvarlegum og illa ígrunduðum ummælum sínum í Kastljósi og víðar hefur Inga Sæland – barna- og menntamálaráðherra þessa lands – greinilega gefið opið skotleyfi á stefnuna sem kennd er við skóla án aðgreiningar.Stöldrum hér aðeins við. Skóli án aðgreiningar er í grunninn bara sú hugsun að börn – öll börn, skuli eiga rétt á menntun í samkurli við jafnaldra sína. Í reglugerð um stuðning við nemendur með sérþarfir í grunnskóla er þessu lýst svo: „Með skóla án aðgreiningar er átt við grunnskóla í heimabyggð eða nærumhverfi nemenda þar sem komið er til móts við náms- og félagslegar þarfir nemenda í almennu skólastarfi með manngildi, lýðræði og félagslegt réttlæti að leiðarljósi.“Það kemur auðvitað ekki á óvart að framkvæmd þessarar stefnu skuli liggja undir gagnrýni. Skóli án aðgreiningar krefst aukins stuðnings inn í skólanna sem hingað til hefur skort á. Þessi skortur á nægum stuðningi hefur skapað aukið álag á kennarastéttina og skólastjórnendur, og var nú varla á bætandi. Til að skóli án aðgreiningar geti fúnkerað almennilega – fyrir fötluð börn, börn af erlendum uppruna eða aðra jaðarsetta hópa barna – þarf að efla skólastarfið með aðkomu fjölbreyttra starfskrafta; þroskaþjálfa, túlka, stuðningsfulltrúa o.s.frv. Um það held ég að flest geti verið sammála um sem þekkja til málsins.Það sem kemur hinsvegar á óvart er að þessi aukna stuðningsþörf eða vanmáttuga framkvæmd stefnunnar virðist ekki vera efst í huga hjá þeim gagnrýnisröddum sem nú heyrast hæst. Yfirlýsingar Ingu Sæland og grein Gunnars Salvarssonar ráðast beint gegn hugmyndinni sjálfri. Skóli án aðgreiningar er sögð falleg draumsýn en „fjarskalega illa ígrunduð“ eða úrelt eða úr sér gengin stefna; „barn síns tíma“. Þar að auki hefur Inga Sæland fundið í skóla án aðgreiningar blóraböggul fyrir meintan lakan námsárangur eða lélega lestrarkunnáttu ungra drengja. Og látið í veðri vaka að lausnin sé því auðvitað sú að vinda ofan af skóla án aðgreiningar.Það hefur opnast skotleyfi á skóla án aðgreiningar – en þorir fólk að segja það upphátt sem andstæðan raunverulega er? Hinn möguleikinn, sem Inga Sæland og fleiri eru nú tekin að tala opinskátt fyrir, hlýtur þá að vera skóli MEÐ aðgreiningu. Viljum við aðgreina börn? Auka á aðgreiningu á fötluðum og ófötluðum börnum? Auka einangrun barna með erlendan uppruna? Að skólar skuli eingöngu vera fyrir „venjuleg“ börn?Látum ekki skort á stuðningi og slælega framkvæmd verða til þess að við færum samfélagið aftur um ár og áratugi þegar kemur að jafnrétti, mannúð og samhug.Skóla án aðgreiningar þarf að efla – ekki tala niður í svaðið. Höfundur starfar að hagsmunum fatlaðs fólks. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Málefni fatlaðs fólks Mest lesið Halldór 5.9.2026 Halldór Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar