Lærisveinar Arons úr leik eftir tap í framlengdum leik Aron Guðmundsson skrifar 27. janúar 2026 17:49 Aron Kristjánsson er landsliðsþjálfari Kúveit Lærisveinar Arons Kristjánssonar í landsliði Kúveit í handbolta eru úr leik á Asíumótinu eftir tap gegn ríkjandi Asíumeisturum Katar í framlengdum undanúrslitaleik liðanna, lokatölur urðu 27-26 Katar í vil.
Með því að komast í undanúrslit Asíumótsins tryggði Kúveit sér sæti á heimsmeistaramóti næsta árs en í dag beið undanúrslitaleikurinn gegn landsliði Katar sem hefur unnið Asíumótið sex sinnum í röð. Leikur liðanna í dag var æsispennandi en alltaf voru það lærisveinar Arons í Kúveit sem að voru skrefi framar og mest náðu þeir sex marka forystu. Það eru hins vegar mikil gæði í landsliði Katara og þeir gerðu sterkt áhlaup á Kúveit þegar komið var fram á lokamínútur leiksins og tókst að jafna hann í stöðuna 22-22 þegar að rétt rúm mínúta eftir lifði leiks. Hvorugu liðinu tókst að finna sigurmarkið fyrir leikslok og því þurfti að grípa til framlengingar. Þar byrjuðu lærisveinar Arons vel og skoruðu fyrstu mörkin, komu sér í stöðuna 24-22. Sitthvort markið frá liðunum tveimur kom leiknum í stöðuna 25-23 Kúveit í vil en þá tók við afburðagóður kafli hjá Katar sem skoraði næstu fjögur mörk leiksins og kom sér tveimur mörkum yfir, 25-27. Kúveit svaraði með marki frá Saleh Ali og minnkuðu muninn í stöðuna 26-27 en nær komust þeir ekki. Katar fer því áfram í úrslitaleik mótsins en Aron Kristjánsson og landslið Kúveit eru úr leik en eru þó með HM sæti í farteskinu.
Handbolti Mest lesið Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Fótbolti Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Íslenski boltinn Tveir í bann fyrir að bauna á Heimi og Ísraelar með sorgarbönd Fótbolti Sveindís til Króatíu eftir dramatík gegn toppliðinu Fótbolti Segir dyrnar opnar fyrir Ronaldo en biðst ekki afsökunar Fótbolti Heimir íhugar ekki afsögn og UEFA þurfi að skoða sín mál Fótbolti Súrt jafntefli í seinni leiknum sem enginn vildi spila Fótbolti Arftaki Ronaldo áfram sjóðheitur í sigri Fótbolti FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Íslenski boltinn Zirkzee með sigurmark en Klopp áfram í brasi Fótbolti Fleiri fréttir Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Uppgjörið: Valur - Mors-Thy 39-28 | Þar lágu Danir í þvi Hörður svarar: „Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu“ Veittist að þjálfara í 3. flokki og málið á borð HSÍ Elvar með sex mörk í toppslagnum Lið Viggós á hvínandi siglingu í Þýskalandi Minden keypti Erling af ÍBV Guðjón Valur hafði betur gegn Arnóri Sjá meira