Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Árni Sæberg skrifar 29. janúar 2026 14:12 Gunnþór Ingvason, forstjóri Síldarvinnslunnar og formaður SFS. Vísir/arnar Formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi telur að komandi loðnuvertíð geti skilað útflutningstekjum upp á 35 til fjörutíu milljarða króna. Hundruð manna muni fá vinnu í sjávarútvegsplássum víða um land en þó í aðeins um sex vikur.
Hafrannsóknastofnun leggur til að rúm 197 þúsund tonn af loðnu verði veidd á þessu fiskveiðiári. Upphaflega lagði hún til innan við fimmtíu þúsund tonna hámarksafla. Hluti íslenskra útgerða í kvótanum mun nema um 150 þúsund tonnum. Gunnþór Ingvason, formaður SFS og forstjóri Síldarvinnslunnar, ræddi ráðgjöfina við Kristján Má Unnarsson í beinni útsendingu í hádegisfréttum Bylgjunnar. „Þetta eru gleðitíðindi, að við séum að fá fimmföldun á okkar kvóta. Þannig að þetta er ánægjulegt og við erum að sjá fram á að geta framleitt núna inn á okkar verðmætustu markaði, inn á Asíumarkað og Austur-Evrópu og svo loðnuhrogn. Við höfum ekki verið að sinna þessum mörkuðum af neinu viti síðustu ár vegna loðnuskorts þannig að það er gríðarlega mikilvægt að ná að viðhalda þessum mörkuðum og fá þetta inn núna.“ Tómir markaðir Loðnan fari inn á tóma markaði og reikna megi með því að gott verð fáist fyrir loðnuna þar. Miðað við bráðabirgðaráðgjöf Hafró hafði verið reiknað með því að loðnuvertíð gæti skilað um tíu milljörðum í útflutningstekjur. En þessi nýju tíðindi, hvað þýðir þetta í verðmætum að þínu mati? „Ég myndi skjóta á svona 35 til fjörutíu milljarða vertíð og það munar um minna.“ Fer hvorki í mjöl né lýsi Veiðiráðgjöfin þýði þó ekki að uppsjávarútgerðarmenn stími beint út á miðin heldur muni þeir bíða eftir því að loðnan fyllist hrognum. „Ég held að menn bíði nú eftir að hrognfyllingunni og að þetta fari í okkar verðmætustu flokka. Það er alveg ljóst að þessi kvóti er ekki það mikill að það sé svigrúm til þess að fara að veiða loðnu með beinum hætti í fiskimjöl og lýsi, þannig að menn munu bíða eftir hrognfyllingu og manneldismörkum.“ Hvað þýðir þetta fyrir stemninguna í loðnubyggðum á landsvísu? „Ég held þetta sé náttúrulega gríðarleg lyftistöng. Það eru auðvitað hundruð manna sem fá vinnu þennan eina og hálfan mánuð sem þetta mun taka okkur að koma þessu í verðmæti. Það eru margir sem fá sneið af kökunni.“
Sjávarútvegur Loðnuveiðar Efnahagsmál Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira