Króatar brjálaðir og Dagur sagður sniðganga fjölmiðlaviðburð Aron Guðmundsson skrifar 29. janúar 2026 14:42 Dagur Sigurðsson er landsliðsþjálfari Króatíu Vísir/Getty Dagur Sigurðsson, landsliðsþjálfari Króatíu, er sagður ætla sniðganga fjölmiðlaviðburð á morgun fyrir undanúrslitaleik Króata gegn Þjóðverjum á EM. Króatar eru brjálaðir yfir skipulagningu EHF í kringum úrslitahelgina í Herning í Danmörku.
Greint er frá óánægju króatíska landsliðsins í miðlinum Sportske novosti í dag en það er TV 2 í Danmörku sem vekur á því athygli að þar séu menn ekki parsáttir með að hafa þurft að ferðast með rútu frá Malmö í Svíþjóð yfir til Herning í Danmörku í morgun eftir að keppni í milliriðlum lauk. Króatar voru fyrir mjög ósáttir með skipulagningu EHF á keppnisfyrirkomulagi EM þar sem að þeir, líkt og önnur lið í milliriðli tvö, þurftu að spila tvo daga í röð og svo ferðast til Danmerkur í dag, degi eftir síðasta leik sín í milliriðlum og degi fyrir undanúrslitaleikinn á morgun. Króatar héldu því fram að króatíska landsliðið væri það eina sem þyrfti að halda til í Silkeborg, um 40 kílómetrum frá Herning. Það er hins vegar ekki rétt, þýska liðið heldur einnig til þar í aðdraganda undanúrslitaleiksins. Í frétt Gol.hr segir að sökum þessa muni Dagur Sigurðsson, landsliðsþjálfari Króatíu sniðganga fjölmiðlaviðburð á morgun á vegum EHF nokkrum klukkustundum fyrir undanúrslitaleikinn gegn Þjóðverjum. Dagur muni á blaðamannafundi króatíska landsliðsins í dag gera grein fyrir óánægju Króata með skipulagningu EHF á mótinu. Eftir því sem að heimildir Vísis komast næst ferðaðist íslenska landsliðið með rútu frá Malmö í Svíþjóð til Herning í dag líkt og króatíska landsliðið og spilaði tvo leiki á tveimur dögum í aðdraganda undanúrslitaleiksins gegn Dönum á morgun. Ólíkt Króötum er íslenska landsliðið þó með bækistöðvar í Herning þar sem að undanúrslitin verða spiluð. Núna klukkan þrjú hefst sameiginlegur blaðamannafundur íslenska og danska landsliðsins í Herning. Honum verður streymt í beinni útsendingu á Vísi. Útsendinguna er hægt að nálgast hér:
EM karla í handbolta 2026 Handbolti Mest lesið „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Beta aldrei upplifað annað eins Fótbolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Enski boltinn Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót Fótbolti Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Thelma Karen fer ekki á EM Fótbolti Fleiri fréttir Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Sjá meira