„Geggjað að fá að vera í þessari stöðu og hitta úr þessum skotum“ Stefán Marteinn Ólafsson skrifar 29. janúar 2026 22:25 Veigar Páll Alexandersson var öflugur í liði Njarðvíkinga í kvöld. Vísir/Anton Njarðvíkingar unnu gríðarlega öflugan og mikilvægan sigur á Álftnesingum í kvöld þegar 16. umferð Bónus deild karla hóf göngu sína. Veigar Páll Alexandersson var hetja Njarðvíkinga í kvöld en hann setti risastór skot undir lok leiks sem hjálpuðu til við að landa fimm stiga sigri 101-96. „
Þetta er gríðarlega mikilvægt að ná þessu“ sagði Veigar Páll Alexandersson sáttur eftir sigurinn. „Dwayne [Lautier-Ogunleye] sagði eftir leik að þetta hafi verið fjögurra stiga leikur. Þeir unnu okkur með einu síðast og við náðum að vinna þá með fimm stigum svo það var gríðarlega mikilvægt og geggjað að ná þessum sigri “ Frábær sigur hjá Njarðvíkingum sem hafa verið hættulega nálægt botnbaráttunni upp á síðkastið en hvað var það sem skildi á milli? „Við hreyfum boltann vel. Mér finnst við svo bara spila sem lið, mér hefur fundist það vanta svolítið undanfarið og bara að ná að klára leikina. Það hefur líka svolítið vesen í vetur að klára leikina og við gerðum það núna“ Þetta var mjög kaflaskiptur leikur þar sem Njarðvík leiddi með tólf stigum í hálfleik en voru svo sex stigum undir í upphafi fjórða leikhluta. Það mátti heyra á Veigari Páli að þessi sigur hafi gefið þeim mikið. „Þetta er búið að vera svolítið erfitt en þetta er svo mikilvægt fyrir okkur að ná þessum sigri og bara byggja ofan á þetta“ Leikurinn var alveg í járnum í fjórða leikhluta og það vantaði eitthvað sérstakt til þess að loka leiknum fyrir annað hvort liðið þá steig Veigar Páll upp og skoraði níu stig í röð fyrir Njarðvikinga gegn þremur frá Álftanesi. „Það er bara geggjað að fá að vera í þessari stöðu og hitta úr þessum skotum. Það er bara geggjuð tilfinning“ Rúnar Ingi Erlingsson kallaði Veigar Pál eftir leik „Njarðvíkuræðina“ sem sigldi þessu heim. „Það er gamall brandari frá síðasta þorrablóti. Hann kallar mig þetta stundum“ sagði brosandi Veigar Páll Alexandersson að lokum.
UMF Njarðvík Körfubolti Bónus-deild karla Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Íslenski boltinn Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fleiri fréttir Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum „Dómarinn var að gera sitt besta og þetta var hans besta“ Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Thelma skoraði í toppslag og titillinn blasir við Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Leeds - Manchester United | Halda vandræði Manchester-manna áfram? Stefán Ingi skoraði af stysta mögulega færi „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu „Þetta var allt of mikið“ Dagskráin í dag: Veisla frá morgni fram á nótt FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Kane brást illa við gríni Valsarans Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór Manzambi reyndist hetja Aston Villa Tár féllu í Bakgarðshlaupinu FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sindri áfram í sextán liða úrslit „Kyngjum þessum leik og klárum hann sem fyrst“ „Þetta er akkúrat staðan sem við vildum vera í“ Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Ólafur hafði betur í Íslendingaslag Elvar öflugur í spennutrylli Sjá meira