Algjörlega magnaður árangur: „Ákveðin vonbrigði að þeir séu ekki fjórir“ Aron Guðmundsson skrifar 30. janúar 2026 14:17 Alfreð Gíslason, landsliðsþjálfari Þýskalands, Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari Íslands og Dagur Sigurðsson, landsliðsþjálfari Króatíu, samankomnir í Herning í Danmörku þar sem að undanúrslitin á Evrópumóti karla í handbolta fara fram í dag. Vísir/Grafík GT Það að þrír íslenskir þjálfarar og íslenska landsliðið taki þátt í undanúrslitum EM í handbolta er ekkert minna en stórkostlegt að mati Einars Jónssonar, handboltasérfræðings og þjálfara og viðurkenning fyrir það góða starf sem unnið sé hér á landi. „
Það eru ákveðin vonbrigði að þeir séu ekki fjórir,“ segir Einar kíminn um þessa ótrúlegu staðreynd. Sjálfur er hann þjálfari innan handboltahreyfingarinnar hér á landi hjá ríkjandi Íslands- og bikarmeisturum Fram. „Þetta er stórkostlegt, að við séum með lið þarna og þrjá þjálfara, algjörlega magnað. Þetta er ágætis viðurkenning og speglar það bara hvað við erum að gera frábæra hluti hér á Íslandi í handbolta. Þetta er góð viðurkenning á því. Maður gleðst yfir þessu og er stoltur yfir því að tilheyra þessari hreyfingu. Jú þetta blæs manni byr í brjósti. Þetta er ótrúlegt afrek. Það verður bara að segjast alveg eins og er.“ Alfreð er að fara með þýska landsliðið í undanúrslit á öðru Evrópumótinu í röð en liðið endaði í fjórða sætinu fyrir tveimur árum. Liðið fór alla leið í úrslitaleikinn á Ólympíuleikunum í París seinna sama ár en varð að sætta sig við silfrið. Dagur er að fara með króatíska liðið í undanúrslit á öðru stórmótinu í röð því liðið endaði í öðru sæti á síðasta heimsmeistaramóti. Það er þegar ljóst að íslenskir þjálfarar vinna að minnsta kosti tvenn verðlaun á þessu Evrópumóti og Dagur á nú möguleika á að gera aðra þjóð að Evrópumeisturum því þýska landsliðið varð Evrópumeistari undir hans stjórn árið 2016.
EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Handbolti Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Fótbolti Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti Hjörvar gaf goðsögninni búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Fleiri fréttir Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Sjá meira