„Voðalega eru Íslendingarnir peppaðir“ Smári Jökull Jónsson skrifar 30. janúar 2026 19:17 Guðni á skrifstofu sinni í Háskóla Íslands. Vísir/Bjarni Guðni Th. Jóhannesson segir að fámenn stuðningsmannasveit Íslands í Herning í kvöld eigi eftir að láta vel í sér heyra og hjálpa strákunum okkar að sækja sigur, slíkt hafi gerst áður. Guðni rifjaði upp glæsta sigra Íslands gegn Danmörku í gegnum tíðina.
Á Facebooksíðu sinni rifjaði Guðni upp frækna sigra Íslands gegn Danmörku í gegum tíðina. Fyrsti sigurinn vannst í apríl 1968 og fyrsti sigurinn á danskri grundu í janúar 1979 þegar Ísland vann 18-15 í Randers. Sigurinn í Randers 1979 var sá fyrsti sem íslenska landsliðið vann gegn Dönum á útivelli.Tímarit.is „Ég man svo vel eftir þessu því pabbi heitinn var aðstoðarþjálfari og Jóhann Ingi Gunnarsson nýtekinn við og þar var að hefjast frábær þjálfaraferill hans. Auðvitað fyltist maður stolti eins og maður gerir nú alltaf þegar við leggjum Dani að velli,“ sagði Guðni í viðtali í kvöldfréttum Sýnar. Sigurinn 1968 verið einkar sætur því hann vannst ári eftir 14-2 leikinn fræga á Parken, leik sem Íslendingar vilja helst gleyma. Árið 1986 vannst síðan fyrsti sigurinn á stórmóti, 25-16 stórsigur. Fyrsti sigurinn gegn Dönum vannst í Laugardalshöll árið 1968.Tímarit.is „Og fyrst ég minntist á pabba, svo kom næsta kynslóð. 1996 lögðum við Dani að velli úti í Danmörku 24-22. Þá var Patrekur bróðir minn meðal annarra góðra leikmanna. Leikurinn var 1. desember og Danirnir áttuðu sig ekki á þessu : „Hvað voðalega eru Íslendingarnir peppaðir“ og vissu ekki fyrr en eftir á að þetta var fullveldisdagurinn.“ Guðni segir það nánast vera í erfðaefni Dana að vanmeta Íslendinga. Þar að auki sé íslenska liðið frábært. Guðni sér líkindi með leiknum 1996 og þeim í kvöld. Árið 1996 vann Ísland sigur í Álaborg og tryggði sér sæti á HM 1997.Tímarit.is „Þá voru nokkrir Íslendingar í höllinni en létu öllum góðum látum og studdu strákana okkar í blíðu og stríðu,“ en stuðningsmenn Íslands verða í miklum minnihluta í kvöld. „Þó við verðum í minnihluta í höllinni þá geta Íslendingarnir sem ná að mæta látið í sér heyra. Ég er handviss um að þeir gera það fyrir okkur öll sem erum hér heima,“ sagði Guðni. Missir ekki svefn þó illa fari Sjálfur segist hann pollrólegur við sjónvarpsskjáinn þegar Ísland spilar og segist ekki missa svefn þó úrslit séu ekki góð. „Finnst svo gaman að geta átt þessar stundir. Hér á Íslandi þá deilum við, rífumst og erum með ólkar skoðanir og ólíka hagsmuni. Það er svo mikilvægt að geta inn á milli að geta fundið, þrátt fyrir allt sem sundrar okkur þá er það líka svo margt sem sameinar.“ „Það eru stundir eins og þesar, það er þegar listafólkið slær í gegn og líka þegar bjátar á og þá sýnum við hvað við getum.“
EM karla í handbolta 2026 Handbolti Landslið karla í handbolta Guðni Th. Jóhannesson Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira