Leikmaður Dana fór á sjúkrahús eftir leikinn í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. janúar 2026 22:54 Nikolaj Jacobsen, þjálfari danska landsliðsins, fattaði ekki strax að Simon Hald væri óleikfær inn í klefa og að hann myndi því ekki spila seinni hálfleikinn. EPA/Bo Amstrup Danska landsliðið komst í kvöld í úrslitaleikinn á Evrópumótinu en liðið þurfti að spila seinni hálfleikinn án eins síns besta varnarmanns.
Varnarmaðurinn Simon Hald fékk höfuðhögg í fyrri hálfleik og danski landsliðsþjálfarinn Nikolaj Jacobsen sagði að Hald hefði verið fluttur á sjúkrahús. „Simon fann fyrir vanlíðan, svo hann var fluttur á sjúkrahús til skoðunar. Ég get ekki sagt meira í augnablikinu,“ sagði Nikolaj Jacobsen eftir leik. Honum líður vel „Ég get sagt að honum líður vel, en við verðum auðvitað að athuga hvort það sé óhætt að láta hann spila á sunnudaginn,“ útskýrði Jacobsen nánar í sjónvarpsveri TV2. Fjarvera Simon Hald þýddi að Magnus Saugstrup var eini danski línumaðurinn sem Nikolaj Jacobsen hafði tiltækan eftir hlé. Eftir átján mínútna leik fékk Hald olnboga Gísla Kristjánssonar í höfuðið og stuttu síðar var hann einnig óvart sleginn í höfuðið af Elíða Viðarssyni. Þjálfarinn fattaði þetta ekki strax Danski varnarjaxlinn kom ekki út í seinni hálfleikinn og það kom nokkuð óvænt upp að sögn Jacobsen. „Ég tók eiginlega ekki eftir því. Í byrjun hálfleiks er ekkert að, en svo kemur Anja [sjúkraþjálfari landsliðsins] og segir að það líði nokkrar mínútur þar til Simon kemur, en það tók svo aðeins lengri tíma,“ sagði Jacobsen. Mikilvægast að Simon nái sér „Núna er það mikilvægasta bara að Simon nái sér aftur. Allt bendir til þess að hann geri það og svo verðum við að sjá hvort hann geti spilað á sunnudaginn,“ sagði Jacobsen. Simon Pytlick tók ekki eftir því fyrr en skömmu fyrir byrjun seinni hálfleiks að Simon Hald væri ekki kominn út úr búningsklefanum. Hvar er hávaxni maðurinn okkar? „Við erum að hlaupa og ætlum að hita upp síðustu þrjátíu sekúndurnar (fyrir seinni hálfleik) og þá lítum við í kringum okkur: „Hvar er hávaxni maðurinn okkar sem á að vera í miðverðinum?“,“ sagði Pytlick. „Hann var ekki þarna, og þá eru menn eiginlega bara mjög fljótir að aðlagast, því Hald getur ekki spilað seinni hálfleikinn, svo við verðum að gera eitthvað. Mér finnst menn leysa það alveg frábærlega,“ sagði Pytlick.
EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Sport Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Tryggvi hafði betur gegn Rubio Körfubolti Fleiri fréttir Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Sjá meira