Handbolti

„Bæði lið eru á felgunni“

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Snorri Steinn og Arnór eru einu skrefi frá bronsverðlaunum.
Snorri Steinn og Arnór eru einu skrefi frá bronsverðlaunum. vísir/Vilhelm

Það er komið að því. Í dag skýrist hvort strákarnir okkar fara með verðlaun heim frá EM eður ei. Fram undan er leikur gegn Króatíu um bronsverðlaunin.

Liðin mættust í milliriðlinum í Malmö þar sem Króatía vann með eins marks mun. Svo er skemmst að minnast þess að Króatía vann líka sigur á Íslandi á HM fyrir ári síðan.

Klippa: Snorri ræðir EHF og bronsleikinn

„Ég held það verði ekkert vesen að rífa liðið upp. Þetta er risaleikur og medalía undir þannig að ég hef ekki miklar áhyggjur af því,“ segir Snorri Steinn ákveðinn.

„Auðvitað eru bæði lið á felgunni og það er bara eðlilegasti hluti í heimi. Þegar út í svona er komið þá finna menn orku og við þurfum að vera meðvitaðir um það í þjálfarateyminu og rúlla þessu aðeins.“

Eftir mikil átök eru margir hnjaskaðir og þreyttir en það eiga allir að vera klárir í átök dagsins.

„Ég hef ekki fengið skilaboð um neitt alvarlegt og held ég hafi úr öllu mínu liði að velja.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×