Gott frumvarp en hverjir komast raunverulega að borðinu? Bogi Ragnarsson skrifar 31. janúar 2026 22:36 Frumvarp um námsgögn, sem nú liggur fyrir Alþingi og felur í sér ný heildarlög um útgáfu og dreifingu námsgagna fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla, er í grunninn jákvætt. Þar er lögð áhersla á aukið aðgengi að námsgögnum, fjölbreytni í útgáfu og stuðning við nýsköpun í kennslu. Slík markmið eru bæði tímabær og nauðsynleg (Mennta- og barnamálaráðuneyti, 2024). Þegar frumvarp af þessu tagi er metið skiptir þó ekki aðeins máli hvaða markmið eru sett fram, heldur einnig hvernig þau eru útfærð í lagatexta. Jafnframt skiptir máli hvaða aðilar fá raunverulega að taka þátt í þeirri framkvæmd og því samstarfi sem lögin kalla eftir. Þar vakna mikilvægar spurningar, sérstaklega fyrir sjálfstæða höfunda og frumkvöðla í námsefnisgerð, sem starfa utan hefðbundins stofnana- og forlagakerfis. Sjálfstæðir höfundar og kerfið Í nefndarumfjöllun um frumvarpið var ég kallaður inn á fund allsherjar- og menntamálanefndar. Þar lagði ég áherslu á eitt einfalt atriði: Hvernig tryggir frumvarpið að sjálfstæðir höfundar námsgagna komist raunverulega að borðinu? (Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis, 2025). Í mínu tilviki byggir Stafbókarverkefnið á meira en áratugar þróunar á námsefni sem nú er í notkun í 11 framhaldsskólum víðs vegar um landið. Verkefnið hefur fest sig í sessi án stuðnings stórra forlaga eða stofnana. Þrátt fyrir það ríkir óvissa um stöðu slíkra verkefna og því þarf lagaramminn að vera skýr ef markmiðið er að styðja við frumkvæði og nýsköpun sjálfstæðra höfunda. Rótgróin forlög eru þegar hluti af kerfinu. Þau hafa stofnanaleg tengsl, langa hefð og greiðan aðgang að þeim vettvangi þar sem ákvarðanir eru teknar. Sjálfstæðir höfundar, jafnvel þeir sem hafa þróað efni í fjölda ára og sannað gildi þess í skólum, standa hins vegar oft utan þessa samtals. Nýsköpun mætir tregðu – ekki vegna gæðanna Reynsla af Stafbókarverkefninu sýnir að hindranir í útbreiðslu liggja sjaldnast í gæðum efnisins. Þvert á móti hafa kennarar lýst ánægju með efnið og bent á að það nýtist vel í kennslu. Bækurnar eru aðgengilegar, nemendamiðaðar og henta vel kennslu í félagsfræði á framhaldsskólastigi. Þær eru hnitmiðaðar, nútímalegar og byggja á skýrum dæmum sem auðvelda nemendum að skilja flókin hugtök og tengja þau við raunveruleikann. Einnig hafa kennarar lýst yfir ánægju með að bókunum fylgi verkefnavefur sem styður vel við kennslu með fjölbreyttum verkefnum (Stafbók, e.d.-a). Umsagnir nemenda styðja þetta mat. Þær sýna að bækurnar vekja áhuga og ná sérstaklega vel til nemenda sem annars hafa lítinn áhuga á lestri eða hefðbundnum námsbókum. Nemendur lýsa bókunum sem skemmtilegum, vel upp settum og auðskiljanlegum, og telja þær bæði áhugaverðar og lærdómsríkar (Stafbók, e.d.-b). Tregðan liggur því frekar í kerfinu sjálfu. Kennarar starfa undir miklu álagi og þurfa stöðugleika í kennslu. Í slíkum aðstæðum er skiljanlegt að halda sig við hefðbundið námsefni frá rótgrónum forlögum fremur en að taka upp nýtt efni utan stofnanakerfisins, jafnvel þótt það reynist vel. Samstarf án fullrar þátttöku Í tengslum við innleiðingu frumvarpsins má nefna örnámskeið í lok janúar þar sem kennarar voru fengnir að borðinu, sem er í sjálfu sér jákvætt skref. Samstarfið var þó bundið við stofnanir, sjóði, samtök og rótgróna útgefendur, sem bendir til þess að sjálfstæðir höfundar séu almennt ekki virkir þátttakendur á þessum vettvangi. Þar er mikilvægt að greina á milli þess að fá að tjá sig sem umsagnaraðili og þess að vera raunverulegur þátttakandi í mótun og framkvæmd. Ef frumvarpið á að standa undir eigin markmiðum um fjölbreytni og nýsköpun þarf að brúa þetta bil með skýrari hætti (Rannsóknamiðstöð Íslands, 2026). Frumvarp sem stenst prófið í framkvæmd Þetta er ekki röksemd gegn frumvarpinu. Þvert á móti. Þetta er ábending um að frumvarp sem á að efla fjölbreytni og nýsköpun verður að tryggja að fleiri en hefðbundnir aðilar hafi raunverulegan aðgang að samstarfi, dreifingu og framkvæmd. Annars skapast sú hætta að lögin styrki fyrst og fremst þá sem þegar eru í yfirburðastöðu, á meðan verkefni sem hafa vaxið utan kerfisins, með mikilli vinnu og fagmennsku, verði áfram berskjölduð. Ef frumvarpið á að ná fram að ganga í anda eigin markmiða þarf ekki aðeins fjármagn, heldur skýra umgjörð sem tryggir að nýsköpun utan stofnanakerfisins fái raunverulegt rými. Höfundur er kennari við Fjölbrautaskóla Suðurnesja og stofnandi stafbok.is. Heimildir Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis. (2025, 27. maí). 30. fundur allsherjar- og menntamálanefndar á 156. löggjafarþingi. Alþingi. https://www.althingi.is/thingnefndir/fastanefndir/allsherjar--og-menntamalaneffndir/fundargerdir/?faerslunr=13365 Mennta- og barnamálaráðuneyti. (2024, 11. mars). Frumvarp til laga um námsgögn (samráðsmál nr. S-74/2024). Samráðsgátt stjórnvalda. https://island.is/samradsgatt/mal/3713 Rannsóknamiðstöð Íslands. (2026, 29. janúar). Viltu verða námsgagnahöfundur? – Örnámskeið um gerð námsgagna frá hugmynd til útgáfu. https://island.is/s/rannis/vidburdir/viltu-verda-namsgagnahofundur-ornamskeid-um-gerd-namsgagna-fra-hugmynd-til-utgafu-29-1-2026 Stafbók. (e.d.-a). Umsagnir kennara og kennaraaðgangur. https://stafbok.is/pages/umsagnir-kennara Stafbók. (e.d.-b). Umsagnir nemenda. https://stafbok.is/pages/umsagnir-nemenda Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bogi Ragnarsson Mest lesið Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Spírallinn Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir skrifar Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir skrifar Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen skrifar Skoðun Getur maður verið rasisti án þess að gera sér grein fyrir því? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Sjá meira
Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar