Valieva sneri aftur á ísinn eftir fjögurra ára bann Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 1. febrúar 2026 13:02 Kamila Valieva var einn umtalaðasti íþróttamaður síðustu Vetrarólympíuleika. getty/Sefa Karacan Rússneska skautakonan Kamila Valieva sneri aftur á ísinn á móti í heimalandinu eftir að hafa afplánað fjögurra ára bann.
Valieva keppti á móti í Moskvu, lenti í 4. sæti í einstaklingskeppni og komst áfram í næstu umferð. Áhorfendur fögnuðu henni vel þegar hún mætti til leiks og köstuðu tuskudýrum inn á ísinn. Valieva, þá aðeins fimmtán ára, var mikið í fréttum á síðustu Vetrarólympíuleikum. Hún hjálpaði Rússum að vinna gullverðlaun í liðakeppni í listdansi á skautum en var síðan dæmd úr leik eftir að hjartalyfið trimetazidine greindist í sýni sem var tekið úr henni á rússneska meistaramótinu sex vikum fyrir Vetrarólympíuleikana í Peking. Þrátt fyrir að hafa fallið á lyfjaprófi fékk Valieva leyfi til að keppa í einstaklingskeppninni þar sem hún náði sér ekki á strik og endaði í 4. sæti. Valieva, sem er nú nítján ára, er nú mætt aftur til keppni eftir að hafa afplánað fjögurra ára bann sem Alþjóða íþróttadómstóllinn, CAS, úrskurðaði hana í. Hún verður þó ekki með á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina sem hefjast á föstudaginn þar sem hún missti af úrtökumótunum fyrir leikana. Valieva gæti snúið aftur á Vetrarólympíuleikana 2030 sem verða haldnir í frönsku ölpunum.
Vetrarólympíuleikar 2022 í Peking Skautaíþróttir Lyfjamisferli Rússa Mest lesið Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn Körfubolti Myndasyrpa frá Reykjavíkurmaraþoninu: Bleyta, bætingar og bros Sport KSÍ og Norðurlöndin lýsa yfir vantrausti á Infantino Fótbolti Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska Enski boltinn Sjáðu hvernig Hull og Brentford fóru með United og Spurs og öll mörkin úr enska Enski boltinn Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Vesen hjá Palace: Mateta heldur því fram að lokaár samningsins sé ógilt Enski boltinn Sigurmark á lokamínútunni í fyrsta leiknum í endurkomu Mourinhos Fótbolti Sara skoraði tvö og Haukar fóru upp í annað sætið Íslenski boltinn Gísli Þorgeir með níu mörk í níu skotum þegar Magdeburg vann Ofurbikarinn Handbolti Fleiri fréttir Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska „Ég mun reyna að finna nýjan Rodri“ Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni KSÍ og Norðurlöndin lýsa yfir vantrausti á Infantino Messi skoraði en Miami heldur áfram að tapa Gamli Primark-starfsmaðurinn sem var nálægt því að skemma fyrir Mourinho Sjáðu hvernig Hull og Brentford fóru með United og Spurs og öll mörkin úr enska Dagskráin í dag: Ensk og íslensk fótboltaveisla Vesen hjá Palace: Mateta heldur því fram að lokaár samningsins sé ógilt Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn Sigurmark á lokamínútunni í fyrsta leiknum í endurkomu Mourinhos De Bruyne gerði gæfumuninn gegn Mikael Agli og félögum Myndasyrpa frá Reykjavíkurmaraþoninu: Bleyta, bætingar og bros De Zerbi ósáttur: „Vorum ekki tilbúnir að berjast“ Hinrik kominn á blað með nýja liðinu og okkar menn í Tyrklandi fögnuðu sigrum Sara skoraði tvö og Haukar fóru upp í annað sætið Brentford tók Tottenham í karphúsið Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Húsvíkinga Gísli Þorgeir með níu mörk í níu skotum þegar Magdeburg vann Ofurbikarinn Ísfirðingar geta andað léttar Andri heldur áfram að skora fyrir Blackburn Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur HK vann enn einn heimaleikinn og Fylkir flengdi Grindavík Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin Stefán Teitur með tvennu í þægilegum bikarsigri Norris náði ráspólnum aftur Díana varð meistari meistaranna eftir vítakeppni Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Sjá meira