Sleggjunni beitt – gegn almenningi Þorsteinn Sæmundsson skrifar 1. febrúar 2026 15:02 Áhrif af aðgerðum ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur í efnahagsmálum eru sem óðast að koma í ljós. Skattahækkanir á fyrirtæki hafa leitt til uppsagna og samdráttar í starfsemi sem hefur í för með sér aukið atvinnuleysi. Breytingar á samsköttun hjóna eru byrjaðar að bíta. Áramótakveðja ríkisstjórnarinnar til þjóðarinnar hefur leitt til mjög aukinnar verðbólgu með þekktum áhrifum á fasteignalán og hættu á hækkun vaxta. Áramótakveðjan fólst í stórhækkun vörugjalda á bifreiðir aðrar en þær sem knúnar eru rafmagni svo og kílómetragjöld sem munu koma misjafnlega við fólk eftir búsetu.Það vantaði ekkert uppá að fjármálaráðherra væri varaður við hugmyndum um hækkun vörugjalda og áhrifum þess að lækka eldsneytisgjöld með svo skömmum fyrirvara og lítilli fyrirhyggju. Ráðherrann skellti skollaeyrum við og fyrir um hálfum mánuði reyndi hann að gera lítið úr varnaðarorðum formanns Miðflokksins á Alþingi vegna hættu á vaxandi verðbólgu. Ráðherrann talaði þá háðslega um meinta ,,kristalkúlu” formanns Miðflokksins. Allt sem formaður Miðflokksins hélt fram í umræðunni þá hefur raungerst og horfur eru heldur verri ef eitthvað er. Auðvitað er ráðherra nokkur vorkunn. Hann hefur nú um nokkurt skeið unnið í afar vernduðu og öruggu umhverfi þar sem lítil ábyrgð og óskorað vald fara saman. Þegar menn mæta á vettvang raunhagkerfisins blasir nokkuð önnur mynd við. Það er ekki eins að krota dæmi á töflur og að fylgjast með ákvörðunum verða að veruleika í raunheimum. Fjármálaráðherra hefur einnig eins og fleiri ráðherrar þessarar ríkisstjórnar tamið sér nokkurn sjálfsþótta í samskiptum við þing og fjölmiðla. Hann virðist ekki hafa lært af því áfalli sem hann og samverkamenn hans hafa kallað yfir þjóðina. Það er verulegt áhyggjuefni þó honum þyki voða leiðinlegt að árangur verka hans sé ekki sá sem hann vænti en flestir aðrir höfðu gert sér grein fyrir. Má minna á álit málsmetandi hagfræðinga og áhrifamenn úr atvinnulífi sem líst hafa aðgerðum ríkisstjórnarinnar m.a. sem ,,sjálfsmarki og kolvitlausri taktík.” Það blasir einnig við að fjármálaráðherra er eini maðurinn á Íslandi sem er hissa á því að aðilar sem dreifa eldsneyti skuli ekki hafa skilað mögulegum ábata af aðgerðum ríkisins að fullu til viðskiptavina sinna. Viðbrögðin eru fálm eitt. Fjármálaráðherra hefur fallið í þá gryfju að kenna öðrum um afleiðingar af aðgerðum ríkisstjórnarinnar. Ekki stórmannlegt. Sýnu alvarlegra er að bæði fjármála -og forsætisráðherra segjast nú ætla að halda áfram með ,,planið” (sic) og einbeita sér að tekjuhlið ríkisfjármálanna. Það þýðir á mannamáli að leita á nýrra leiða til að almenningur borgi herförina gegn verðbólgunni sem ríkisstjórnin ræður ekki við. Það er því rétt að fylgjast vel með næstu ,,leiðréttingum” ,,aðlögunum” og öllum hinum orðaleppunum yfir skattahækkanir sem ríkisstjórnin hefur á prjónunum. Höfundur er varaþingmaður Miðflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þorsteinn Sæmundsson Mest lesið Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson Skoðun Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir Skoðun Halldór 01.08.2026 Halldór Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson Skoðun Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson Skoðun „Nei“ er ekki lok málsins, - það er frestun þess Hjálmar Vilhjálmsson Skoðun Evra eða króna? Grímur Grímsson Skoðun Skoðun Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Sigurgeir Þorkelsson skrifar Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Brestur í manngæsku - ESB og flóttafólk Ari Orrason skrifar Skoðun Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Evra eða króna? Grímur Grímsson skrifar Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir skrifar Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén skrifar Skoðun „Nei“ er ekki lok málsins, - það er frestun þess Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvernig varð gervigreindin til og hvernig virkar hún? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar eru góðu mennirnir? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Slagorð í stað gagna: Grein Snorra Mássonar um ESB-aðild Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Hættulegasti tími ársins í umferðinni Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Að neita að leita Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun ESB umræðan og gervigreindin Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hver ber raunverulega ábyrgð á minkaslysinu? Anahita Sahar Babaei skrifar Skoðun Spænska knattspyrnuliðið sem héraðsmetafór fyrir Spán Jordi Oriola Folch skrifar Skoðun Gæði bygginga ráðast ekki ef reglugerðum einum saman Bergþóra Góa Kvaran skrifar Skoðun Ég hélt að þetta væri bara lítið hrúður Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Af hverju já? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Ef lausnirnar eru til, af hverju eru þær ekki notaðar? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Óreiða á samviskunni Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar Skoðun Fullveldi fyrir hvern? Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Viðræðurnar snúast um aðlögun Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kristrún skýrði loksins hvað verður kosið um Gunnar Ármannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar
Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar