Skýrsla Vals: Hafa það sem við höfum ekki Valur Páll Eiríksson skrifar 1. febrúar 2026 19:00 Ísland - Króatía Leikur um Brons á EM karla í handbolta í Herning Danmörku 2026 Vísir/Vilhelm Danir í stúkunni kyrja „Ísland! Ísland!“ eftir hetjulega baráttu strákanna okkar á lokakaflanum. Það var of lítið, of seint, en þessir drengir hafa heldur betur náð mörgum á sitt band með besta árangri þessa hóps á stórmóti.
Maður var að bíða allan leikinn eftir því að Danirnir myndu styðja við okkur. Það var ekki fyrr en heldur strangir tveggja mínútna dómar þrýstu baki þeirra við vegginn í miðri endurkomu að það tókst. Strákarnir hefðu líklega getað fengið stúkuna með sér fyrr. Þeir fengu séns til að ná frumkvæðinu, nýttu það ekki og voru í erfiðum eltingaleik þökk sé slakri byrjun. En að ná fjórða sæti er þrusugóður árangur eftir kaflaskipt mót. Magdeburgarbræður, Gísli og Ómar, drógu vagninn eins og svo oft áður. Eins og verið hefur á þessu móti hefði Gísli getað fengið meira frá dómurunum en strákarnir klúðruðu þessu alfarið sjálfir með of löngum og of slökum köflum. Dauðafærin í byrjun leiks kosta sitt og þegar Króatar skora úr hverju skoti eru þeir snöggir að ná upp góðri forystu. Viktor Gísli fann ekki taktinn, sem var því miður of oft reyndin á þessu móti. Bjöggi kom ágætlega inn í dag og náði að halda hreinu fyrstu fimm mínútur sínar á vellinum. En heilt yfir fór of mikið inn hjá Króötunum og aldrei, fyrr en alveg í blálokin, tókst að tengja saman góða sókn og góða vörn til að minnka muninn. Þreytan segir til sín og Danaleikurinn situr í mönnum. Janus átti einn sinn besta landsleik á ferlinum á föstudaginn en átti lítið eftir á tankinum í dag, líkt og fleiri. Eðlilega. Við fjölmiðlafólkið finnum til streitu og þreytu eftir langa vakt hér ytra en þessir gæjar hafa spilað heila handboltaleiki á tveggja daga fresti, eða jafnvel dag eftir dag, í tæpar þrjár vikur. Þetta tekur sinn toll. Eftir leik á föstudag sagði Henry Birgir kollegi minn að strákarnir væru komnir á stall sem þeir muni áfram vera á næstu ár. Maður vonar sannarlega að sú verði reyndin enda býr svakalega mikið í þessu liði líkt og sást á leikjunum við Svía og Dani. Misstigin voru hins vegar einnig mörg á þessu móti, og Ísland virðist vera eina landsliðið sem getur unnið heimsklassalið og klikkað gegn slöku liði daginn eftir. Gæðin eru klárlega til staðar en stöðugleikinn þarf að finnast. Króatarnir og Dagur Sigurðsson eiga hrós skilið. Þreytan var ekkert minni þar en hjá okkur. Þetta er sögulega laskað króatískt lið sem missti besta leikmanninn frá fyrri leiknum við Ísland og missti líka markvörðinn sinn fyrir leik dagsins. Okkur tókst að grafa bæði Ungverja og Svíagrýlu á þessu móti en það virðist sem þessi Dags og Króatagrýla sé sprelllifandi. Króatar hafa þessa reynslu, að vinna til verðlauna og þjösnast að því að vinna til þeirra. Reynsla sem okkur skortir. Það býr meira í þessu íslenska liði. Þetta fer í reynslubankann góða og menn koma vonandi tvíefldir inn á næsta mót, reynslunni ríkari. Strákarnir sem sagt eiga inni en eru samt fjórða besta lið Evrópu. Það segir sitt um framfaraskref þessa liðs sem ég trúi ekki öðru en að verði fleiri á næstu misserum. Þeir hafa núna tekið það skref að komast í undanúrslit. Næsta skref er verðlaun eða úrslitaleikur.
Landslið karla í handbolta EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Sport Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Tryggvi hafði betur gegn Rubio Körfubolti Fleiri fréttir Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Sjá meira