Biður Dag afsökunar Aron Guðmundsson skrifar 1. febrúar 2026 19:46 Dagur Sigurðsson, landsliðsþjálfari Króatíu á hliðarlínunni í leik dagsins gegn Íslandi. Vísir/Vilhelm Króatinn Nenad Kljajic, fyrrverandi landsliðsmaður og handboltaþjálfari, sem var hluti af liði Króatíu sem vann Ólympíugull á leikunum í Atlanta árið 1996, biður Dag Sigurðsson, landsliðsþjálfara Króatíu afsökunar í færslu á samfélagsmiðlum í dag.
Kljajic hefur ekki hikað við að gagnrýna opinberlega það sem honum mislíkar við ákvarðanir teknar af króatíska handknattleikssambandinu. Það gerði hann til að mynda þegar að Dagur Sigurðsson var ráðinn landsliðsþjálfari Króatíu í febrúar fyrir tæpum tveimur árum síðan. Dagur er afar sigursæll þjálfari, hann gerði meðal annars Þjóðverja að Evrópumeisturum árið 2016 og eftir að hann tók við þjálfun króatíska landsliðsins hefur liðið unnið til verðlauna á stórmótum tvö ár í röð. Króatía vann silfur á HM í fyrra og í dag tryggði liðið sér bronsverðlaun á EM. Þessi árangur liðsins undir stjórn Dags hefur orðið til þess að Kljajic biður Dag nú afsökunar. „Bravó strákar, frábær árangur,“ skrifaði Kljalic í færslu á samfélagsmiðlum eftir að Króatar höfðu lagt Ísland að velli í leiknum um bronsverðlaun á EM fyrr í dag. Kljalic hrósaði leikmönnum króatíska landsliðsins sem og þjálfarateyminu. „Ég vil hér með biðja Dag Sigurðsson afsökunar á orðum mínum þegar að hann var ráðinn landsliðsþjálfari Króatíu á sínum tíma. Ráðning hans hefur reynst heillaskref.“ Þá var Kljalic sérstaklega ánægður með blaðamannafund Dags á dögunum fyrir undanúrslitaleikina á EM þar sem að hann gagnrýndi keppnisfyrirkomulagið á stórmótinu harkalega svo eftir því var tekið. „Ég nýt þess að sjá baráttuandann hjá leikmönnum liðsins. Við skiljum allt eftir inn á vellinum, ekkert annað landslið getur skákað okkur í þeim efnum.“
EM karla í handbolta 2026 Mest lesið „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Enski boltinn Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót Fótbolti Beta aldrei upplifað annað eins Fótbolti Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu Körfubolti Fleiri fréttir Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Sjá meira