Með fleiri mörk með langskotum en Ísland og samt með sex færri leiki spilaða Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. febrúar 2026 13:02 Íslensku strákarnir töpuðu tveimur síðustu leikjum sínum á Evrópumótinu og misstu af verðlaunum. Svekkelsið var mikið í leikslok á bronsleiknum. EPA/Thomas Traasdahl Íslenska landsliðið náði fjórða sætinu á Evrópumótinu í handbolta þrátt fyrir að fá lítið sem ekkert af mörkum með langskotum. Tölfræði mótsins sýnir það svart á hvítu hversu langt á eftir íslenska liðið var á eftir bestu liðum mótsins. Íslenska landsliðið fékk aðeins skráð 34 mörk með skotum af níu metrum á mótinu en liðið spilaði níu leiki og var því aðeins að fá 3,8 slík mörk í leik. Íslensku strákarnir eru þarna langt á eftir mörgum liðum, til dæmis skoruðu öll hin liðin í undanúrslitum miklu fleiri mörk. Þjóðverjar fengu 97 langskotsmörk á mótinu, Króatar 71 mark og Danir 62 mörk með skotum fyrir utan. Þrátt fyrir að hafa spilað fleiri leiki en flestar þjóðir og miklu fleiri leiki en margar þjóðanna þá situr íslenska landsliðið bara í fjórtánda sæti þegar kemur að mörkum af níu metrum. Þrettán þjóðir á þessu Evrópumóti skoruðu fleiri mörk en Ísland með langskotum og þar á meðal eru Tékkar. Tékkarnir skoruðu einu marki fleira með skotum fyrir utan en íslenska landsliðið og það þrátt fyrir að spila sex leikjum færra en Ísland á mótinu. Íslenska liðið reyndi líka bara 68 skot með langskotum á öllu mótinu en það voru líka þrettán þjóðir sem tóku fleiri skot fyrir utan en strákarnir okkar á þessu móti. Króatar tóku sem dæmi 167 skot fyrir utan á mótinu eða 99 fleiri langskot en Ísland tók í jafnmörgum leikjum. Þjóðverjar tóku 194 langskot eða 126 fleiri en Ísland. Íslendingar þjálfa auðvitað bæði þessi lið, Dagur Sigurðsson er með Króatana og Alfreð Gíslason með Þjóðverjana. Þegar kemur að mörkum úr öðrum leikstöðum þá skoraði Ísland flest mörk úr hornum (53), flest mörk úr vítum (51) og flest mörk úr gegnumbrotum (66) af öllum liðum mótsins. Íslenska liðið endaði aftur á móti aðeins í tíunda sæti yfir mörk skoruð af línunni. Flest mörk með langskotum á EM 2026: 1. Þýskaland 97 2. Króatía 71 3. Danmörk 62 4. Frakkland 58 5. Spánn 57 6. Portúgal 54 7. Svíþjóð 52 8. Sviss 49 9. Noregur 46 10. Slóvenía 43 11. Ungverjaland 38 12. Svartfjalland 39 13. Tékkland 35 14. Ísland 34 EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Sport Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti Tryggvi hafði betur gegn Rubio Körfubolti „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Fleiri fréttir Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Sjá meira
Íslenska landsliðið fékk aðeins skráð 34 mörk með skotum af níu metrum á mótinu en liðið spilaði níu leiki og var því aðeins að fá 3,8 slík mörk í leik. Íslensku strákarnir eru þarna langt á eftir mörgum liðum, til dæmis skoruðu öll hin liðin í undanúrslitum miklu fleiri mörk. Þjóðverjar fengu 97 langskotsmörk á mótinu, Króatar 71 mark og Danir 62 mörk með skotum fyrir utan. Þrátt fyrir að hafa spilað fleiri leiki en flestar þjóðir og miklu fleiri leiki en margar þjóðanna þá situr íslenska landsliðið bara í fjórtánda sæti þegar kemur að mörkum af níu metrum. Þrettán þjóðir á þessu Evrópumóti skoruðu fleiri mörk en Ísland með langskotum og þar á meðal eru Tékkar. Tékkarnir skoruðu einu marki fleira með skotum fyrir utan en íslenska landsliðið og það þrátt fyrir að spila sex leikjum færra en Ísland á mótinu. Íslenska liðið reyndi líka bara 68 skot með langskotum á öllu mótinu en það voru líka þrettán þjóðir sem tóku fleiri skot fyrir utan en strákarnir okkar á þessu móti. Króatar tóku sem dæmi 167 skot fyrir utan á mótinu eða 99 fleiri langskot en Ísland tók í jafnmörgum leikjum. Þjóðverjar tóku 194 langskot eða 126 fleiri en Ísland. Íslendingar þjálfa auðvitað bæði þessi lið, Dagur Sigurðsson er með Króatana og Alfreð Gíslason með Þjóðverjana. Þegar kemur að mörkum úr öðrum leikstöðum þá skoraði Ísland flest mörk úr hornum (53), flest mörk úr vítum (51) og flest mörk úr gegnumbrotum (66) af öllum liðum mótsins. Íslenska liðið endaði aftur á móti aðeins í tíunda sæti yfir mörk skoruð af línunni. Flest mörk með langskotum á EM 2026: 1. Þýskaland 97 2. Króatía 71 3. Danmörk 62 4. Frakkland 58 5. Spánn 57 6. Portúgal 54 7. Svíþjóð 52 8. Sviss 49 9. Noregur 46 10. Slóvenía 43 11. Ungverjaland 38 12. Svartfjalland 39 13. Tékkland 35 14. Ísland 34
Flest mörk með langskotum á EM 2026: 1. Þýskaland 97 2. Króatía 71 3. Danmörk 62 4. Frakkland 58 5. Spánn 57 6. Portúgal 54 7. Svíþjóð 52 8. Sviss 49 9. Noregur 46 10. Slóvenía 43 11. Ungverjaland 38 12. Svartfjalland 39 13. Tékkland 35 14. Ísland 34
EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Sport Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti Tryggvi hafði betur gegn Rubio Körfubolti „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Fleiri fréttir Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Sjá meira