Fær sér kengúrutattú Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. febrúar 2026 12:32 Carlos Alcaraz faðmar bikarinn eftir sigurinn á Opna ástralska meistaramótinu. Getty/Darrian Traynor Spænski tenniskappinn Carlos Alcaraz varð um helgina yngsti maður sögunnar til að vinna titil á öllum fjórum risamótunum í tennis. Hann er ekki í vafa um hvernig hann ætlar að fagna sigrinum.
Á blaðamannafundi í Melbourne eftir úrslitaleikinn á sunnudaginn upplýsti þessi 22 ára gamli Spánverji að hann myndi minnast sigursins á Opna ástralska meistaramótinu með húðflúri af kengúru. „Ég veit nú þegar að það verður kengúra, ég veit bara ekki hvar á líkamanum. Ég er að hugsa um fótinn, kálfann, en ég veit ekki hvort það verður á þeim hægri eða vinstri,“ sagði Carlos Alcaraz. Carlos Alcaraz on the tattoo he’s going to get in honor of winning the Australian Open:“It’s gonna be a kangaroo for sure. A little kangaroo.” 😭😭😭(via Australian Open Press) pic.twitter.com/Dgdfx4rWKj— The Tennis Letter (@TheTennisLetter) February 1, 2026 Alcaraz sigraði serbnesku goðsögnina Novak Djokovic í úrslitaleiknum. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hann fagnar risamótstitli með bleki á líkamanum. Þegar hann vann sinn fyrsta titil með sigri á Casper Ruud í úrslitaleik Opna bandaríska meistaramótsins árið 2022 fagnaði hann með því að láta húðflúra dagsetningu úrslitaleiksins, „11.09.22“, á upphandlegginn. Síðar hefur hann einnig látið húðflúra dagsetninguna á sínum fyrsta Wimbledon-titli ásamt jarðarberi, en það er hefð fyrir því að borða jarðarber á breska mótinu. Alcaraz er einnig með húðflúr af Eiffelturninum til minningar um sinn fyrsta titil á Opna franska meistaramótinu. Fyrir ofan húðflúrið frá Opna bandaríska hefur hann síðar látið bæta við Frelsisstyttunni og Brooklyn-brúnni. One more Slam, one more tattoo. Aussie ink loading… 🇦🇺🦘👀@carlosalcaraz #AO26 pic.twitter.com/BtP4Rk9zls— Tennis TV (@TennisTV) February 1, 2026
Tennis Mest lesið Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Körfubolti Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Fótbolti Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Fótbolti Fleiri fréttir Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Dagskráin: Meistaradeildin og Körfuboltakvöld kvenna „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United Stjarnan hefur fundið nýjan Bandaríkjamann „Þurfum að halda áfram á þessari braut“ „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Liverpool með fjögurra marka endurkomu Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sjá meira