Menning

Hestastelpa úr sveit og sjóð­heitur hönnuður

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Salóme Hollanders listakona er að opna sýningu.
Salóme Hollanders listakona er að opna sýningu. Vísir/Anton Brink

„Ég er hugfangin af hestum enda eru þeir einstaklega falleg dýr,“ segir listakonan og vöruhönnuðurinn Salóme Hollanders sem hefur algjörlega slegið í gegn með listræna spegla sína og einstök listaverk.

Þann 6. febrúar klukkan 17:00 opnar hún einkasýningu á eigin verkum í galleríinu HERMA á Hverfisgötu 4. Sýningin ber titilinn MÓSKA sem vísar í mistur eða þokuslæðu og draumkennt landslag.

Salóme er fædd árið 1996 og er búsett í Reykjavík en hún ólst upp fyrir norðan.

„Sýningin fjallar um skynjun og túlkun á landslagi í gegnum form og liti. Hvernig form eiga í samspili innan strigans og skapa í gegnum það litlar sögur innan hvers verks. 

Innblásturinn á að mögu leyti rætur að rekja til æskunnar þar sem ég ólst upp í sveit á Norðurlandi. 

Ég sæki í eigin minningar og verkin taka því oft á sig dulrænan blæ. Það er smá eins og maður sé ekki alveg viss hvar maður er, en staðurinn er samt á einhvern hátt mjög kunnuglegur,“ segir Salóme um sýninguna og heldur áfram:

„Ég hef mikinn áhuga á því hvernig umhverfi okkar endurmótast í minningum, hvernig landslag leysist upp í form og raðast aftur saman í huganum þar til það verður að tilfinningu frekar en raunverulegum stað. 

Í verkunum má sjá glitta í hest hér og þar. Ég ólst upp meira eða minna á hestbaki og hugfangin af hestum enda einstaklega falleg dýr og eru þeir hluti af persónulegu táknsæi innan verkanna.“

Sýningin stendur til 15. febrúar. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.