„Hvenær í ósköpunum er botninum náð á þessum vinnustað?“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 3. febrúar 2026 20:36 Steinunn Þórðardóttir er formaður Læknafélags Íslands. Vísir/Arnar Slæmar vinnuaðstæður og þrengsli á bráðamóttöku Landspítalans geta útsett starfsfólk og sjúklinga fyrir ýmsum sýkingum að mati framkvæmdastjóra hjá Landspítalanum. Formaður Læknafélags Íslands segir starfsstéttina í töluverðu uppnámi í kjölfar berklasmits sem átti sér mögulega stað á bráðamóttökunni.
Greint var frá því að minnsta kosti átta starfsmenn á bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi hafi verið útsettir fyrir berklum. Allir starfsmennirnir fengu jákvætt svar í mótefnaprófi en vel getur verið að þeir hafi smitast af berklum fyrir mörgum árum. Rafn Benediktsson, framkvæmdastjóri bráða-, lyflækninga- og endurhæfingarþjónustu Landspítalans, ræddi málið í kvöldfréttum Sýnar. Hann segir vinnuaðstæður á bráðamóttökunni óviðunandi og því geti komið upp smit. „Vinnuaðstæðurnar okkar hérna eru mjög slæmar. Það eru gríðarleg þrengsli og þetta er jú bara móttaka og hingað kemur alls konar fólk. Það geta komið upp smit og fólk getur orðið útsett fyrir berklum eins og þetta tilfelli snýst um,“ segir hann. Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélags Íslands, var á sama máli þegar hún ræddi málið í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni. „Það er töluvert uppnám og líka meðal stéttarfélaga starfsfólksins sem um ræðir og okkur er gríðarlega brugðið yfir þessum fréttum,“ segir hún. „Við höfum svo sannarlega talað árum saman og sérstaklega á þessu ári eða því nýliðna, mikið um þetta alvarlega ástand á bráðamóttökunni sem fer síversnandi. Svo verða uppákomur eins og þessar og maður hugsar: hvenær í ósköpunum er botninum náð á þessum vinnustað?“ Fjöldi neyðarkalla og viðvarandi viðbúnaðarstig Steinunn segir, líkt og Rafn, að ekki þurfi að hafa áhyggjur af því að berklasmit breiðist út. Hins vegar endurspegli atvikið stærri og alvarlegri vanda. Hún sjálf hafi rætt við starfsfólk sem segir að ekki sé hægt að tryggja sýkingarvarnir. „Við erum búin að senda út mörg neyðarköll í gegnum árin. Maður veit ekki hvað þarf að segja eða hvaða lýsingarorð þarf að nota til þess að hlutirnir fari virkilega í gang, til að bregðast almennilega við þessu. Það var búið að leggja fólk inn á fundarherbergi, í bílskúra og annað. Það virðist ekki duga vegna þess að ástandið er enn þá verra núna heldur en það var þá,“ segir hún. Lausn Steinunnar felst í sérstöku rými á bráðamóttökunni, sérstaklega fyrir fólk með mögulegar sýkingar. „Við vitum líka að fólk hefur endað á göngum með staðfesta inflúensusýkingu, sem við vitum að er mjög alvarleg ef hún berst til dæmis til eldri einstaklinga sem eru þarna í sömu aðstæðum,“ segir formaðurinn. „Ég get ekki séð annað en að fólk hljóti að smitast þarna við vinnu miðað við aðstæðurnar og þessi gríðarlegu þrengsli sem eru bara komin langt umfram allt velsæmi. Hvar sem þú myndir horfa til bráðaþjónustu, þá erum við bara í skelfilegri stöðu. Landspítalinn er búinn að vera á þessu hæsta viðbúnaðarstigi allt síðasta ár.“
Landspítalinn Heilbrigðismál Reykjavík síðdegis Bylgjan Ástand á bráðamóttöku Landspítalans Berklar Tengdar fréttir Mesti fjöldi í sögu bráðamóttökunnar Aldrei hafa jafn margir leitað á bráðamóttöku Landspítalans vegna hálkuslysa á einum degi líkt og á þriðjudag þegar níutíu slösuðust. Leggja þurfti fimm inn á sjúkrahúsið. 22. janúar 2026 15:59 Mikið álag á bráðamóttökunni á Akureyri Gríðarlegt álag er á bráðamóttöku Sjúkrahússins á Akureyri þessa dagana. Starfsfólk biðlar til fólks um að leita ekki þangað nema að brýn þörf sé á. Fjöldi leitar einnig á Landspítalann og Læknavaktina. 18. desember 2025 23:31 Mest lesið Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðgangna til Eyja Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent Fleiri fréttir Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðgangna til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Sjá meira
Mesti fjöldi í sögu bráðamóttökunnar Aldrei hafa jafn margir leitað á bráðamóttöku Landspítalans vegna hálkuslysa á einum degi líkt og á þriðjudag þegar níutíu slösuðust. Leggja þurfti fimm inn á sjúkrahúsið. 22. janúar 2026 15:59
Mikið álag á bráðamóttökunni á Akureyri Gríðarlegt álag er á bráðamóttöku Sjúkrahússins á Akureyri þessa dagana. Starfsfólk biðlar til fólks um að leita ekki þangað nema að brýn þörf sé á. Fjöldi leitar einnig á Landspítalann og Læknavaktina. 18. desember 2025 23:31