Handbolti

Sjáðu Dag Sig taka „Purple Rain“ með Prince á raf­magns­gítar

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Dagur Sigurðsson með rafmagnsgítarinn upp á sviði í fögnuði Króatanna.
Dagur Sigurðsson með rafmagnsgítarinn upp á sviði í fögnuði Króatanna. @hrs_insta

Króatar eru fyrir löngu búnir að uppgötva hversu öflugur handboltaþjálfari Dagur Sigurðsson er en eftir Evrópumótið á dögunum uppgötvuðu þeir hversu góður tónlistarmaður Dagur er líka.

Við höfum áður séð myndbönd með Degi skemmta liðsfélögum sínum í bronspartýinu eftir sigurinn á Íslandi en hann hætti ekki þar. Dagur var einnig kallaður upp á svið á fagnaðarhátíð króatíska landsliðsins í heimalandinu.

Dagur var þá búinn að skipta út kassagítarnum fyrir rafmagnsgítarinn og var kominn upp á svið.

Dagur er þekktur fyrir að að stefna hátt sem þjálfari og hefur þegar unnið sex verðlaun með landsliðum sínum á stórmótum, tvenn verðlaun með Þýskalandi, tvenn með Japan og tvenn með Króatíu.

Hann slakaði ekkert á metnaðinum þegar hann var kominn upp á svið með gítarinn.

Dagur henti nefnilega í lagið „Purple Rain“ með Prince. Þetta er eitt frægasta lag Prince, sem átti marga smelli á mögnuðum tónlistarferli, en þetta lag er þekktast fyrir stórbrotinn leik Prince á rafmagnsgítarinn.

„Ég veit ekkert hvað ég er að gera en ég vona að bandið elti mig,“ sagði Dagur þegar hann var kominn upp á sviðið en hann var ekki að gera. Hvernig stóð hann sig? Það má sjá hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×