Er Borgarlínan metnaðarfull framtíðarsýn eða tálsýn? Kristín Thoroddsen skrifar 5. febrúar 2026 10:03 Borgarlínan er eitt stærsta samgönguverkefni sem ráðist hefur verið í á höfuðborgarsvæðinu og hefur vakið bæði miklar væntingar og harða gagnrýni. Markmið hennar er að efla almenningssamgöngur, draga úr notkun einkabílsins og stuðla þar með að sjálfbærari samgöngum. Þótt markmiðin séu metnaðarfull og jákvæð, fylgja verkefninu áskoranir sem koma sérstaklega fram í sveitarfélögum utan Reykjavíkur, þar á meðal í Hafnarfirði. Í grunninn felur Borgarlínan í sér stóreflingu almenningssamgangna, sem er í takt við það sem íbúar höfuðborgarsvæðisins hafa kallað eftir. Spyrja má hvort verkefnið hafi verið gert flóknara en þörf er á með miklum hönnunarkostnaði, fjármunum sem hugsanlega hefði verið betur varið í núverandi strætókerfi. Hefði verið hægt að ná svipuðum árangri með auknu fjármagni, fleiri sérakreinum og forgangi á ljósum? Almenningssamgöngur á kostnað einkabílsins? Borgarlínan lofar hraðari, tíðari og áreiðanlegri almenningssamgöngur en nú eru í boði. Með sérakreinum og forgangi í umferð getur ferðatími styst og almenningssamgöngur orðið raunhæfur valkostur fyrir fleiri. Til lengri tíma gæti hún dregið úr umferð, minnkað mengun og bætt loftgæði. Á móti koma veruleg neikvæð áhrif á einkabílinn. Víða er almennum akreinum fækkað til að rýma fyrir sérakreinum Borgarlínunnar, sem mun auka tafir og gerir daglegar ferðir fólks á einkabíl flóknari. Forgangur Borgarlínunnar á umferðarljósum veldur lengri bið fyrir aðra umferð. Þá er einnig bent á fækkun bílastæða á lykilsvæðum, sem getur hæglega haft neikvæð áhrif á verslun og þjónustu. Þá er von um að þessi aðför að einkabílnum neyði fólk til að nýta sér þjónustu Borgarlínunnar og er um leið skerðing á frelsi fólks til að velja sér samgöngumáta. Í samgöngusáttmálanum var samþykkt að auka fjármagn til umferðarstýringar á stofnvegum til að bæta flæði. Þrátt fyrir greiningar, skýrslur og úttektir, sem nú spanna um sex ár, sitjum við enn föst dag eftir dag í endalausri umferðarteppu. Meirihlutinn í Reykjavíkurborg hefur dregið lappirnar, reynt að hefta ferðir einkabílsins og hafnað lausnum eins og mislægum gatnamótum, sem hefðu jákvæð áhrif á allt höfuðborgarsvæðið. Hafnarfjörður undir auknu álagi og óleystum flöskuhálsum Í Hafnarfirði bætast þessi áhrif við á álagstímum. Umferð í gegnum bæinn hefur aukist á síðustu árum, meðal annars vegna fólksfjölgunar, aukinnar atvinnustarfsemi og fjölgun ferðamanna. Þetta hefur leitt til meira álags á helstu stofnleiðir, með töfum og umferðarhnútum. Sérstaklega hefur verið bent á hringtorgið við N1, þar sem tafir á álagstímum hafa áhrif langt út fyrir nærliggjandi svæði. Ökumann stytta sér leið í gegnum íbúðahverfi sem eykur umferð við íbúðagötur, með tilheyrandi hættu fyrir vegfarendur. Ljóst er að grípa þarf til aðgerða strax, en þær mega ekki útiloka framtíðarlausnir við hringtorgið eins og stokk eða göng. Hafnarfjörður stendur frammi fyrir flóknu samspili vaxandi bílaumferðar og breyttrar samgöngustefnu. Borgarlínan getur orðið hluti af langtímalausninni, en hún ein og sér leysir ekki þann umferðarvanda sem við stöndum frammi fyrir. Of miklum fjármunum hefur verið varið í Borgarlínuna, og því óraunhæft að hverfa frá því verkefni núna. Framtíðarlausnin þarf að taka mið af heildarmyndinni og fela í sér raunhæft samspil Borgarlínu og einkabílsins, þar sem tekið er tillit til raunverulegra þarfa og mismunandi lífstíls fólks. Að öðrum kosti er hætt við að Borgarlínan verði ekki sú metnaðarfulla framtíðarsýn sem lofað er, heldur kostnaðarsöm tálsýn sem eykur álag, dregur úr valfrelsi og skilur eftir sig samgöngukerfi sem þjónar hvorki fólkinu né markmiðum sínum. Höfundur er bæjarfulltrúi og frambjóðandi í 1.sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kristín Thoroddsen Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Borgarlína Mest lesið Halldór 5.9.2026 Halldór Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar