Beint af EM í toppslag: „Andlegi hlutinn sem ég þarf að eiga við“ Aron Guðmundsson skrifar 5. febrúar 2026 13:33 Björgvin Páll í bronsleiknum gegn Króötum á EM þar sem að hann átti frábæra innkomu Vísir/Vilhelm Björgvin Páll Gústavsson er mættur heim eftir EM í handbolta og á fyrir höndum stórleik í kvöld með liði Vals gegn Haukum í Olís deildinni. Það getur verið krefjandi að skipta um gír eftir stórmót en Björgvin býr að mikilli reynslu frá fyrri árum. „
Ég er bara peppaður, þekki lítið annað. Hef gert þetta nítján sinnum áður, að fara beint í leik af stórmóti,“ segir Björgvin Páll í samtali við Vísi. „Það er eftirvænting hjá manni og ekki verra að leikurinn í kvöld er stórleikur. Þetta er toppslagur og fínt að byrja bara á því.“ Þrátt fyrir að Valsmenn vermi toppsæti Olís deildarinnar um þessar mundir, með eins stigs forskot á Aftureldingu og tveggja stiga forskot á Hauka í þriðja sætinu, eru það gestirnir úr Hafnarfirðinum sem hafa haft yfirhöndina í leikjum liðanna til þessa á tímabilinu. Liðin mættust síðast í október í fyrra, þá í bikarnum, í leik sem fór alla leið í vítakeppni og endaði með sigri Hauka. „Haukar eru með frábært lið og vel að því komnir að vera búnir að sigra okkur í þessum tveimur leikjum á tímabilinu til þessa. Ég held líka að það sé kominn tími fyrir okkur núna til þess að snúa þessu við. Þetta eru tvö sterk lið sem hafa átt harðar rimmur síðustu ár. Við þurfum að gíra okkur í þetta og koma okkur almennilega fyrir á toppi deildarinnar. Þetta verður hörku leikur eins og leikir þessara liða hafa verið til þessa á tímabilinu. Það að leikur okkar í bikarnum hafi farið alla leið í vítakeppni segir alla söguna varðandi það hversu jöfn þessi lið eru.“ Björgvin Páll er nýkominn heim eftir að hafa tekið þátt á EM með íslenska landsliðinu þar sem að liðið var nálægt því að vinna til verðlauna en tapaði leiknum um bronsið gegn Króötum og endaði því í fjórða sæti á mótinu sem er besti árangur Íslands á stórmóti síðan á EM 2010. Úr EM búbblunni kemur Björgvin Páll beint heim í alvöruna í Olís deildinni, aðstæðurnar að mörgu leiti ólíkar þó svo að íþróttin sé sú sama. „Þetta er öðruvísi og maður er farinn að elda matinn sinn sjálfur aftur, það er kannski helsta breytingin. En auðvitað er þetta breyting og flestir leikmenn koma örlítið laskaðir frá svona ævintýri, annað hvort á líkama eða sál. Fyrir mig persónulega er það andlegi hlutinn sem ég þarf að eiga við. Bæði gagnvart vonbrigðunum að ná ekki að vinna medalíu á EM en á sama tíma þakklæti og gleði yfir því að ná svona langt á mótinu. En maður hefur ekki tíma til að hugsa um það núna, það kemur kannski seinna en ekki fyrir leikinn í kvöld.“ Toppslagur Vals og Hauka í Olís deild karla í handbolta hefst klukkan 19:30 á N1-vellinum að Hlíðarenda í kvöld. Leiknum verður lýst í beinni textalýsingu hér á Vísi.
Olís-deild karla Valur Haukar EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Mest lesið Kemur alltaf í Þór Íslenski boltinn Extraleikarnir: Nablinn varð náfölur og ældi endalaust eftir keppni Körfubolti „Fyrirgefðu mamma“ Enski boltinn Ísland - Portúgal 62-60 | Frábær sigur Íslands Körfubolti Skoraði ekki fyrir Val en kostar núna 1,7 milljarð Fótbolti Rauða spjald Bernando Silva lamaði endurkomu City Fótbolti Sjáðu Albert í essinu sínu þrátt fyrir innbrotið Fótbolti Stórbrotið mark Eze og Arsenal örugglega áfram Fótbolti Pabbinn urðaði yfir þjálfara sem sá að sér Enski boltinn „Allt of snöggur og óvæntur endir“ Handbolti Fleiri fréttir Strákarnir okkar slógu í gegn í Smáralindinni „Allt of snöggur og óvæntur endir“ Hægt að hitta handboltahetjurnar í dag Enginn slaki gefinn Hótar eigin leikmönnum og þjálfurum Ísak dró sig úr hópnum gegn Svíum VIP-miðar í boði til að komast nær strákunum okkar Viggó og Andri fengu skell gegn meisturunum Nýbakaði faðirinn með níu mörk Íslendingaliðið úr leik eftir tap í undanúrslitum Víkingur Reykjavík upp í Olís deildina „Þetta er ekki búið“ Sara Dögg í miklum ham er ÍR styrkti stöðu sína Valur - Fram 32-31 | Risaleikur Lovísu kláraði Fram „Hefði verið leiðinlegt að skora öll þessi mörk og tapa“ Donni drjúgur og Elvar með frábæran leik Selfoss hafði sætaskipti við Stjörnuna á botninum Haukar stöðvuðu sigurgöngu Eyjakvenna Stiven flaug áfram í átta liða úrslit Teitur og Elliði unnu Íslendingaslaginn Haukur og félagar eyðilögðu hátíðarhöld Guðmundur og Ísak að missa af úrslitakeppninni Tvisvar markakóngur fyrir tvítugt „Þetta er svolítið skrítið því ég vil ekki „jinxa“ neitt“ „Þórsarinn er svo geggjaður“ Þór - KA 31-31 | Allt jafnt í æsispennandi Akureyrarslag FH - ÍR 34-28 | FH sendi ÍR niður um deild „Þú ert að biðja mig um að finna eitt stig“ Valur sótti deildarmeistaratitil til Eyja Orri fagnaði dramatískum sigri og fer til Póllands Sjá meira