Hvergi meiri ánægja með þjónustu við börn og barnafólk Grétar Ingi Erlendsson skrifar 5. febrúar 2026 15:01 Samkvæmt könnun Gallup myndu um 90% þeirra sem taka afstöðu mæla með því að fólk flytji í Sveitarfélagið Ölfus. Það er ekki oft sem við bæjarfulltrúar fáum skýra og óumdeilda staðfestingu á því að við og starfsmenn sveitarfélagsins séum að gera hlutina rétt. En þegar þjónustukönnun Gallup sýnir að Ölfus stendur yfir meðaltali á öllum mældum þáttum, og skarar fram úr á 9 af 13 þeirra í samanburði við sambærileg sveitarfélög, þá er ekki um tilviljun að ræða. Þá er um að ræða stefnu sem er að skila árangri. Leikskólar, skólar og íþróttir: grunnurinn að framtíð samfélagsins Það er mér sérstök ánægja hversu mikil ánægja er með þjónustu sveitarfélagsins okkar hvað varðar það sem snýr að börnum og fjölskyldum þeirra er. Þar mælist ánægja íbúa í Ölfusi mest miðað við samanburðarsveitarfélög. Þetta á við um ánægju með leikskóla, grunnskóla, íþróttaaðstöðu og heildarþjónustu við barnafjölskyldur. Öll vitum við að þetta eru grundvallarstoðir samfélags sem ætlar sér að vaxa og dafna. Svona upplifa íbúar Ölfus í dag Ánægja íbúa með sveitarfélagið sem stað til að búa á, skipulagsmál, menningarlíf og heildarþjónustu er einnig í hæstu hæðum. Enn mikilvægara er þó að íbúar upplifi að erindum þeirra til sveitarfélagsins sé sinnt af fagmennsku og mannlegri nálgun. Þar mælist Ölfus hæst allra samanburðarsveitarfélaga. Það segir meira en mörg orð. 90% myndu mæla með Ölfusi Niðurstöður um búsetugæði tala sínu máli. Um það bil þrír af hverjum fjórum telja að gæði þess að búa í okkar góða sveitarfélagi hafi aukist á undanförnum árum og nær 90% þeirra sem taka afstöðu myndu mæla með búsetu í Ölfusi. Slíkt traust fæst ekki með yfirlýsingum einum saman, það fæst með markvissri vinnu, ákvörðunum og því að hlusta eftir vilja íbúa. Við erum ekki hætt, við viljum gera enn betur Það væri hins vegar skammsýni að gleyma sér í gleðinni og halda að toppnum sé náð. Við viljum gera enn betur. Þrátt fyrir að ánægja mælist á öllum þjónustuþáttum yfir meðaltali þá vitum við að það er svigrúm til umbóta. Við vitum að það er hægt að gera betur gagnvart eldriborgurum, til dæmis hvað varðar tilkomu hjúkrunarheimils. Við þekkjum að það er komin tími á frekari aðgerðir í búsetumálum fatlaðra. Það er líka hægt að standa betur að umhverfismálum. Tækifærin til að gera betur eru víða. Þar liggur ábyrgðin okkar, að halda áfram að bæta þjónustu við alla íbúa, óháð aldri eða aðstæðum. Á réttri leið, með metnað að gera enn betur. Niðurstaðan er skýr: Ölfus, og höfuðborgin okkar hér í Þorlákshöfn, er á réttri leið. Starfsfólk sveitarfélagsins á heiður skilið fyrir elju og fagmennsku. Við vitum að það eru þau sem tryggja þessa þjónustu sem mælist mest ánægja með á landinu. Verkefnið fram undan er einfalt í orði en auðvitað krefjandi í framkvæmd. Við ætlum okkur að halda áfram af metnaði, festu og raunsæi. Við vitum að við erum á réttri leið og við höfum metnað til að gera enn betur. Þannig verða góð sveitarfélög til. Höfundur er bæjarfulltrúi D -lista. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Halldór 5.9.2026 Halldór Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar